VLF reseiver , þetta apparat keypti ég mér um daginn, Þetta er notað til að hlusta á útvarpsbylgjur á mjög lágri tíðni, og því hægt að hlusta á bylgjur frá norðurljósonum. VLF þýðir very low frequency frá 0.1 til 15 kHz (100 - 15,000 Hz) Ég er búinn að prufa græjuna og virkar flott. Allskonar hljóð koma út úr þessu og er stefnt að því að taka upp hljóðin og byrta hér, en sólar virkni og sól blettir eru í lágmarki og auðvi
Heiðríkja hér vestra og gott veður eftir hvassviðri og rigningu, oft hér vestra blasa við norðurljósin sem geta verið falleg og eru það sannarlega. Oftast nær þetta yfir allann himininn hér í Dýrafirði og er sjónarspil mikið. Þessa mynd tók ég núna 30. águst. Þegar stjörnuljósmyndun fer fram er hægt að afskrifa kvöldið í þeim efnum, þegar norðurljós eru mikil og þegar þau dofna er eins og himininn sé enn mjög mengaður eftir þau Stjörnur farnar að sjást vona að eitthvað verði hægt að skoða í vetur, síðasti vetur alveg glataður, fáir dagar með heiðum himni. Tók þessa mynd af stóru stjörnunni okkar (sólinni) setjast á bakvið fjöllin. Fullt tungl er fallegt hér í Dýrafirðinum þegar aðstæður eru svona, logn og heiðrýkja, litirnir ótrúlegir þegar tunglið skríður upp úr fjöllonum innst í fjarðar botninum. , Panstarrs halastjarnan hátt á himni og sést vel. Ég skoðaði hana með handsjónauka út um herbergisgluggann hjá dóttur minni og öll fjölskyldan gerði það einnig,, bara næs, sá hana með berum augum út um gluggann. Skellti mér svo í bíltúr og tók nokkrar myndir. Um 20 manns mættu í stjörnuskoðun hér á Þingeyri og fengu að dást að halastjörnunni Panstarrs. Tók smá tíma að finna hana en eftir að hún var fundin setti ég tölvustýrða sjónaukann á hana og týndum henni ekki eftir það. Þegar myrkur var orðið meira sáu hana allir með berum augum stórir sem smáir. skemmtileg upplifun fyrir alla. , . Hér er halastjarnan PanStarrs, myndina tók ég um níu leitið (15/3) Nikon D40 iso400 í 5 sec. Ég fór út um hálf átta til að gera tilraun til að finna hana var með handsjónauka og var búinn að leita lengi, en enn var of bjart í firstu, þannig að ég stillti upp græjonum mínum á meðan myrkur var að færast hægt yfir. Skýja spáin sagði að frá svona um fimm eða sex leitið ætti að vera heiðrýkja sem stóðst nú ekki alveg og átti að hreinsa alveg af um kvoldmatarleitið, og ekki stóðst það heldur það bætti bara í og var nánast orðið alskýjað uppúr átta.Ég var nokkuð heppinn að það var risa gat á skýjahulunni á þeim slóðum sem halastjarnan átti að vera þannig að ég gafst ekki upp. En alltaf var ég að kýkja í handsjónaukann á meðan ég var að stilla upp tölvusjónaukanum til að vera viss um að ég myndi ekki missa af henni. En svo gerðist það, ég fann hana og var mjög hissa en samt ánægður þar sem að ég hélt að hún væri kannski farin undir fjöllin, en þar sem ég sá hana var hún bara nokkuð ofarlega og kom mér á óvart hversu ofarlega hún var svo ég hafði nógan tíma til að skoða hana og mynda. Og svo var bara að skoða og mynda og mynda, ég smellti af stannslaust þar til hún var komin undir fjöllin. Fór út hér fyrir tveimur dögum að freista þess að taka einhverjar myndir. og var skotmarkið þessi vetrarbrautar þyrping sem er kölluð Markarian's Chain já af því að hún er eins og keðja í laginu. Þetta er dálítið auðvelt skotmark og er þetta bara einn rammi (ein mynd) í 2 min í brakandi norðurljósum, en ekki náðust fleiri myndir þar sem norður ljósin voru yfir þessum eina stað allann tímann, sé myndavélinni beint í norðurljósin verður myndin bara hvít, og ekkert annað á myndinni og þannig voru allar myndirnar sem ég reyndi að taka. Eins og ég hef sagt áður að þá er ekki nóg að það sé heiður himinn heldur verður hann að vera skýr líka og laus við norðurljós en þau eru mjög algeng hér og eyðilegga oftast fyrir stjörnuljósmyndun hjá mér, það er nánast undantekningar laust norðurljós þegar himinninn er heiðskýr. Á myndinni má sjá vetrarbrautir þar sem örvarnar benda, 13 stykki takk og bara ein mynd 2 Rosette nebula, gömul mynd frá 20 jan 2012 set þetta hér inn þar sem lítið er að gerast hjá mér. Þetta eru sennilega 3 myndir samtals 13 mínútur, mig langar að reyna við þessa aftur við gott tækifæri, þetta er stór þoka og kannski auðveld veit ekki allavegana kom þetta svona út hjá mér bara með þremur myndum. Myndir frá 2011. Ég verð að pósta hér gömlum myndum til að hreyfa þetta blogg pínu. Ekkert gefur í stjörnuskoðun ennþá alveg skelfilegt. Þetta er mynd af vetrarbrautum M81 og M82 sem sjást saman í augngleri á minni sjónaukum gaman að skoða og þokkalega auðvelt að finna sé maður með stjörnukort. Myndirnar tók ég í November 2011. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|