Hér er smá afrakstur gærkvöldsinns , Það er mynd af gasrisanum Júpiter. Myndin er samsett úr 20 römmum hand valdir út úr vídeói sem ég tók og voru staflaðir saman í Registax. Júpiter var einstaklega skýr og góður að horfa á í gærkvöld og hef ég sjaldan séð hann eins vel. Sjá má rauða storma blettinn vinstramegin í neðra skýjabeltinu. Ég tók nokkur myndskeið mis góð og mis mikið soomað að. Ég notaði 8 tommu dobson sjónaukann með 20mm augngleri og hélt Sony videóvélinni við augnglerið. Þetta er mín besta mynd af júpiter til þessa en það gæti verið að það komi fleiri kannski betri myndir út úr hinum myndskeiðonum.
Stjörnubjart hér vestra í gærkvöld, skýjahula var fram undir tíu, en þá rofaði alveg til og var albjartur himinn. Ég fór samt fljótlega eftir kvöldmat að skoða Júpiter svona á milli skýja, ég var nú bara hér úti í garðinum mínum svo það var stutt að fara inn á milli þegar ekkert sást. Mikil glýja var og Júpiter var mjög óskýr framanaf en um miðnætti var hann komin svo hátt á loft og voru aðstæður orðnar allt aðrar. Ég sá skýjabeltin mjög vel og gat stækkað hann upp töluvert, sá einnig rauða storma blettinn góða sem ég hef ekki séð svona vel áður. Ég tók vídeó af júpiter sem ég á eftir að vinna úr en hef ekki náð því svona góðu heldur áður. Ég skoðaði eitthvað fleira og var 8 tommu dobson sjónaukinn notaður líka, M31-m13-m57-m27-m33 m71-M1- M56-m97-m108-m92-m103 double cluster og einhverjar fleiri stjörnuþyrpingar, skoðaði einnig nokkur tvístyrni sem komu vel út Alkor og Misar- Almaak- og einhvar fleiri. Skoðaði líka stjörnuna Mírak og drauginn hanns eða vetrarbraut sem felur sig nánast á bak við Mírak og er kölluð ghost of Mirak,NGC 404. Hér er vídeó af Satúrnus sem ég tók síðasta vetur, ég var að leika mér með það í movie maker, alltaf hægt að betrumbæta allar myndir. Vega Það gerði stjörnubjartan himinn hér vestra í kvöld 18. okt og ég rauk út, ætla nú ekk að missa af þessu. Ég var búinn að smíða mér spjald úr pappa með kross vír yfir til að setja fyrir framan sjónaukann og svo átti semsagt að reyna að gera svona spæka á bjartar stjörnur, og já það virkar sko alveg eins og sjá má á þessari mynd af Vegu sem ég tók nú í kvöld með þessum merkilega og ódýra búnaði. Ég tók einnig myndir af öðrum björtum stjörnum til að prufa græjuna og virkaði ágætlega. Og hér er Subaru merkið. Stjörnubjart hér vestra í kvöld 11. oktober, Það var fullt tungl og ekkert spennandi að fara út í stjörnuskoðun, en það er bara svo gaman að maður lætur ekki svona bjart kvöld framhjá sér fara. Ekki mikið var að sjá í sjónskoðun en ég reyndi að taka nokkrar myndir og það er eins og það er á fullu tungli,,, bara alltof bjart. Ég áhvað því að taka myndir af lausþyrpingum en ekki neinum þokum í þetta skiptið og var ég búinn að áhveða að skjóta á þyrpingu sem kallaðist ET cluster eða NGC 457, og heppnaðist það ágætlega, ekki samt alveg nógu ánægður með útkomuna. Tók einnig mynd af double cluster og m13 stjörnuþyrpingunni í Herkúlesi. En sú mynd sem heppnaðist best í þetta skiptið var M92 (sem er hér í færslunni) sú stjörnuþyrping er einnig í Herkúlesi, myndirnar eru 7 talsins staflaðar í Deepsky stacker, myndavéllin Nikon D40 stillt á ISO 800 . Ég er ekkert kominn með myndvinnsluna á hreint ennþá myndirnar eru bara fljót unnar. Fór aðeins út í gærkvöld, það átti að vera heiðskýr himinn um miðnætti en það var ekki fyrr en um eitt leitið sem skýjin voru farin að mestu. Tunglið var nánast fullt og bjart yfir öllu svo ekki sáust nema björtustu stjörnur, ég reyndi að mynda en tunglið er bara svo bjart að það tókst ekkert maður sér ekkert. Svo dró fyrir ský yfir allt rétt fyrir tvö svo ég pakkaði saman dótinu og fór að sofa. Ég vaknaði einhverja hluta vegna um fjögur og kíkti út um gluggann og þá var albjartur himinn og tunglið farið á bak við fjöllin en samt bjarmi frá því, þá var t.d Órion kominn hátt á loft og fleiri spennandi stjörnumerki. Ég tók hér enokkrar myndir af M57 sem voru allar lélegar en læt fylgja hér með færslunni, þetta er bara ein mynd ekki stafli af mörgum, læt hana bara með til að lífga uppá færsluna. Smá smuga í kvöld hér vestra, ég ætla allavegana að hafa græjurnar tilbúnar í kvöld og prufa að taka myndir með Lumicon
deep sky síu sem ég fékk að láni hjá Kristjáni. verður spennandi að sjá hvað kemur út úr því Núna er annar dagurinn í röð sem stefnir í að vera heiðskýr sól og gott veður en svo dregur fyrir
seinnipartinn og er alskýjað á kvöldin, hund fúlt en svona er þetta bara spáin ekki góð framundan bara rigning og leiðindi fyrir þetta sport allavegana. Sælir Ég var að spá í hvort einhver ætti svona síu, sem er Baader Contrast-Booster Filter - 1.25" sem er bæði Moon&Skyglow filter, og Contrast-Booster hún eiðir líka blámanum í kringum bjartar stjörnur úr sjónaukum eins og mínum. Ég var að spá í hvort einhver ætti svona síu sem einhver vill losna við, einnig er ég farinn að sjá fram á að það sé bara heiðskýrt á fullu tungli þannig að ef einhver á skyglow síu bara staka væri ég til í að versla eina. Þetta er semsagt nýja bloggið og vona ég að ykkur eigi eftir að líka þessi nýji staður með nýju útliti og öllu því.
Ég færði af gamla blogginu síðustu færslurnar bara svona til að byrja Ég á væntanlega eftir að bæta við græju síðu á þennann vef ásamt einhverju öðru þróa þetta bara eftir hendinni. Njótið vel. K.V Jón Sig. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|