Hér er stöfluð mynd 24 saman af halastjörnunni 168p , þetta er pínu greinilegt.
Halastjarnan 168p samsett í vídeo. Myndirnar eru 24 raw myndir lagaðar aðeins til. Á vídeóinu sést halastjarnan færast þó nokkuð enda myndirnar teknar á 3mur tímum. Myndavélin er Nikon D40 stillt á ISO 1600, myndirnar eru teknar sumar á 3 min og aðrar uppí 4 mínútur. Comet 168P er halastjarna sem er nú stödd í stjörnumerkinu Vængfákur eða Pegasus. Ég var búinn að lesa smá um að hún væri þarna og að hún væri ekkert sérstaklega björt, en ég fann hana og náði nokkrum myndum. Á þessari mynd sést hún þarna fyrir miðju myndarinnar. Var að taka vídeó af tunglinu um daginn og tók eftir því að eitthvað flaug framhjá, hélt að það væri fugl en ég er búinn að stækka svo mikið að tunglinu með myndavélinni á sjónaukanum að þetta gæti ekki verið fugl,,,, í svarta myrkri,,,, fugl nálægt mér við þessa stækkun hefði blokkerað myndina alveg, Þannig að ég held að þetta gæti verið geimrusl að þjóta framhjá. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|