Halastjarnan Lovejoy er nú á himninum og sést bara vel í sjónauka, ég fór í smá stjörnuskoðun aðalega til að mynda halastjörnuna en kíkti á nokkur fyrirbæri svona í leiðinni. Ég tók með mér 114mm spegilsjónaukann sem er merktur Tasko og er víst ekki gott merki, en ég var bara búinn að gleyma hvað hann er góður og þokkalega bjartur, ég kíkti á M31 Andromedu vetrarbrautina, M33 sem er líka vetrarbraut stutt frá Andromedu, svo var það M1 eða Krabbaþokan , M57 hringþokan í Hörpunni, M42 Orion þokan ásamt hlauparanum sem er fyrir ofann, M13 kúluþyrping í Herkúlesi og M92 sem er þar líka, og svo náttúrulega halastjarnan Lovejoy sem tók mestan tíma í að mynda og skoða vel. Myndina tók ég á Nikon D3100 með 70-300 linsu, og notaði ég Skywatcer EQ3 mótor drif eða sjónaukastæði, myndin er tekin í 5min á iso 400.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|