Svona var útlitið í kvöld, stjörnubjart tungl, svolítill vindur, ég fór með átta tommu sjónaukann út á gangstétt og skoðaði Júpiter og tunglið, bæði komu ágætlega út, vindurinn stóð samt inn í túbuna og allt á hreifingu, svolítil ókyrrð í lofti sem gaf ekki alveg skýra mynd, sá samt skýjabeltin á skífunni og tunglin fjögur skörtuðu sínu. Tunglið var bjart og fallegt og gígarnir skarpir og góðir við mikla stækkun mjög gaman að skoða ,, svolítið langt síðan ég nennti að skoða tunglið.
Reyna að gera betur, þetta er skárra, Það er auðvitað gaman að fikta við myndirnar til að fá þær betri, ég fæ samt aldrei bakgrunninn svartan, það þarf eitthvað mikið til að það gerist,, Bakgrunnur svartur og viðfangsefnið í forgrunni bjart og fallegt, það er það sem myndvinnslan snýst um. Búinn að fá algert ógeð á þessari mynd, bara get ekki unnið hana, eitthvað að í myndatökunni, það myndast svona hringir utan með henni allri, svo held ég að white balans daylight settings bara virki ekki á þessari myndavél, myndirnar verða allar gular eða eitthvað, skipti um white balans í Incandescent, og þá voru myndirnar betri, en sú stylling var ekki á þessum myndum. Halastjarnan Lovejoy. tók þessa í gærkvöld 15x 30 sek ISO 1600, 15X 45 sek ISO 800 og 15X 45 sek ISO 400, og 20x svartir rammar. Nikon D3100, 70-300 @300mm. var að prufa að stafla á halastjörnu, svo er það myndvinnslan þarf að læra þetta betur. M13 kúluþyrping. 19 rammar 30 sec @ISO 1600. og 27 rammar 30 sec 3200, samtals 23 minútur. 18 svartir rammar30 sec @ ISO 1600. Myndavél Nikon D3100. Ég hélt að ég gæti betur, þarf að læra þessa myndvinnslu betur þetta gengur ekki, og að hafa meiri tíma útivið, þetta kemur kannski einhverntíman. M31 eða Andromeda vetrarbrautin. Tekin 9.november. Þetta eru samtals 17 minútur, allir rammar teknir í 30 sek, 10 X ISO 1600, 18 X ISO 3200, og 6 X ISO 6400. - 18x Iso 1600 svartir rammar. Þetta er ágætt má gera betur ef maður nennir. Myndavél var Nikon D3100, með 70-300 linsu stillt á 300mm. Thanks very much. M 33 svona milli skýja, alveg hundleiðinlegt veður alltaf, þetta eru 3 myndir staflaðar. Nikon D3100 myndvinnslan út í hött, enda veður og allt annað á afturfótonum, næstum því ekki að nenna þessu, Mikið um norðurljós hér eins og annarsstaðar á landinu (14.okt) tók fullt af myndum. læt hér nokkrar koma. Ætlaði að fara í stjörnuljósmyndun með allar græjurnar en norðurljós og tungl passar ekki fyrir svoleiðis. En falleg norðurljós.. Fór með vinum mínum að skoða norðurljósin í gærkvöld, tókum nokkrar myndir. Á einni myndinni sem ég tók var þessi skemmtilegi loftsteinn sem að vinir mínir sáu reyndar ,og spurðu mig hvort ég hefði séð hann. Loftsteinadrífan leonítar eiga að vera flestir í kvöld 7. og 8 okt, kannski var þessi aðeins á undan. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|