Vel heppnuð sólskoðun á Hrafnseyri og Þingeyri, fjölmargir kýktu í sjónaukann og virtu fyrir sér sólina og þá stóru sólbletti sem á henni voru.
Svona leit sólin út núna 15. júní og verður svipuð þann 17. júní þegar Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness verður með sína árlegu sólskoðun á 17. júní við Austurvöll í RVK, ég sem félagi í því félagi verð einnig með sólskoðun á Hrafnseyri fæðingarstað Jóns Sigurðssonar milli 14:00 og 16:00 og svo á Þingeyri við N1 söluskálann. eftir kl 17:00. Vonum bara að sólin verði ekki hulin skýjum þann dag. Stjörnuáhugafólk á Þingeyri og nágrenni virtu fyrir sér þvergöngu venusar, ský voru að þvælast fyrir í upphafi þvergöngunnar en svo rofaði til og sást til sólar með ágætum. Um 30 manns mættu til að virða þetta fyrir sér og þótti flestum ef ekki öllum stór merkilegt að fá að vera vitni af þessum merkilega viðburði. Horft var í gegnum 8" dobson spegilsjónauka með white light síu sérstök til sólskoðunnar. Ég HR Jón Sigurðsson tók nokkrar myndir af viðburðinum sem eru hér á eftir. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|