Hér er Flame nebula sem ég myndaði á laugardaginn síðasta 26. nov. Ég er bara ótrúlega sáttur við þessa eins og hinar sem ég tók líka. Þessi er tekin á Nikon D40- ISO 1600- sem eru um 10 myndir 2 min hver um sig. Ég hef aldrei náð að sjá Horse head nebula líka á mínum myndum þannig að ég er ótrúlega sáttur við hana. Myndin er stærri í myndaalbúminu hér uppi. Ég náði fullt af myndum þessi tvö kvöld, veður mjög gott á föstudagskvöldið og heiðskýrt, og svo var alveg logn þannig að aðstæður voru góðar. Á meðan ég var að taka myndirnar horfði ég bara upp í himininn og virti fyrir mér stjörnurnar og allt sem himininn hefur uppá að bjóða. Loftsteinar komu stöku sinnum í lofthjúpinn okkar með tilheyrandi ljósrönd. Ég var einn á ferð og var ég staddur í þetta skiptið uppá fjallinu okkar Sandafelli,þar var algert myrkur, logn og dauða þögn hvað er nú betra en það? það eina sem ég heyrði var kurrið í sjónaukastæðinu og röflið í sjálfum mér... við sjálfan mig, við erum góðir saman ég og mig þegar við erum einir
Hér er önnur mynd frá því í hvöld, annað kvöldið stjörnubjart M81 og M82 5 myndir iso 1600 sirka 2 minútur hvor. Ég tók myndir af fleiri fyrirbærum sem ég á eftir að vinna með ég er enn að læra að vinna myndirnar, en ég geri þetta bara svona í fljótheitum. Stjörnubjart svona stundum í gærkvöld (25. nov ) það komu skýja hnoðrar með snjókomu annaðslægið og þá sást ekkert, en inná milli var mjög stjörnubjart og tært og gott skyggni. Ég fór með græjurnar hálfaleið uppá fjall til að mynda þokurnar tvær í Orion önnur þokan var Flame nebula og hin var Órion þokan sjálf. Ég tók 5-7 myndir af Flame nebula en ekki voru allar góðar, en í firsta skiptið náði ég eftir að þeim var staflað að sjá Horsehead nebula líka á myndinni. Órion þokan er hér til hliðar og stærri mynd í myndaalbúmi, hana tók ég bara svona í restina því að þegar skýjin komu þá var það svo furðulegt að eini bletturinn sem var ekki ský fyrir voru fjósakonurnar og órion þokan, og var það svoleiðis örugglega í 20 minotur, það var bara svona gat í langan tíma sem ég tók myndir í gegnum þar til skýjin fóru alveg fyrir. myndin er tekin á 127mm linsusjónaukann með Nikon D40 stillt á ISO 1600, 4 myndir um 2 min. Júpiter milli skýja hér í kvöld, skyggnið var ekkert sérlega gott. tók hér vídeó af júppa svona til að gera eitthvað. svo var vídeóinu staflað í Registax. Annars er þetta nú búið að vera meiri tíðin maður,, bara ógeð eða þannig svona fyrir stjörnuáhugafólk. Alltaf vonar maður að þetta fari nú að skána,, en þá kemur bara önnur lægðar súpa hver á fætur annari er þetta ekki bara sér Íslenskt , held það nú bara. Annars er þetta búið að vera lítilfjörlegt eins og með stjörnuspjallið hjá stjörnuskoðunarfélaginu það er bara enginn að tjá sig um ekki neitt, annsi dapurt. Vonum samt að það besta sé framundan um jólin og svona þá verður heiðskýrt alla daga. Rofaði til augnablik og þar var tunglið, ég smellti mynd af því svona bara til gamanns, ég á svo margar myndir af tunglinu og þær eru allar eins því að jú tunglið snýr alltaf sömu hliðinni að okkur og verður svoleiðis um ókomna tíð. En það er alltaf jafn gaman að skoða þennann nágranna okkar og virða fyrir sér gígana og velta fyrir sér hve margir þeir eru og hversu stórir loftsteinar hafa gert þessa og þessa holu. Ætli við verðum einhvern tímann vitni af loftsteini lenda á tunglinu okkar það gæti orðið mikið sjónarspil jafn vel með berum augum. Hér er video af júpiter síðan um daginn. Ég notaði Sony DCR vídeo kameru á 20mm augnglerið, ég var ekki með festinguna við augnglerið hélt bara vélinni við augnglerið svo að myndin var öll á hreifingu, ég er búinn að sooma vídeoið smá og laga byrtuna pínu. Kíkti hér út um gluggann í morgun (10.nov) og sá að það var stjörnubjart svona um hálf átta, ég sá stjörnumerkið Ljónið (Leo) og þar var plánetan Mars skær og fín. Ég tók átta tommuna sem var við dyrnar og skoðaði plánetuna og sá dökkusvæðin, dálítill vindur var og sjónaukinn hreifðist mikið,ég notaði 25mm og 4mm augngler, einnig skoðaði ég Satúrnus sem var lágt á lofti , hringarnir eru orðnir tignarlegir og sjást mjög vel. Ég teiknaði eina lélega mynd til að láta með færslunni. Stjörnubjart hér vestra í gærkvöld 4. nov. Ég bauð konunni með mér út í garð að skoða stjörnurnar. Skoðuðum við Júpiter og tunglin þrjú,, já bara þrjú því að tunglið Evrópa var á bakvið Júpiter, en tókum eftir því að eftir klukkutíma var Evrópa sýnileg og er ótrúlegur hraði á tunglunum á hringsóli sínu um Júpiter. Skýjabelti Júpiters voru skýr og greinileg og stækkaði ég upp í 250x stækkun og var plánetan bara skýr og góð við þá stækkun. Ég sýndi konunni þessi helstu fyrirbæri sem ég hef skoðað í hverri ferð sem ég fer í stjörnuskoðun eins og M57 hringþokuna í Hörpunni M13 stjörnuþyrpinguna í Herkúlesi og eitthvað fleira. Einhver sagði að þetta hafi verið eins og rómantísk stund úr bíómynd, já hvað er rómantískara en að fara með konunni í stjörnuskoðun. Það virðist ætla að vera stjörnubjart alltaf þegar það er vaxandi tungl sem er að varða ansi leiðinlegt allavegana til að fara í stjörnuljósmyndun og nenni ég eiginlega ekki að reyna einusinni að taka myndir þegar það er tungl bara leiðinleg tímasóun í ekki neitt. Svo þegar tunglið er farið þá koma lægðir með tilheyrandi úrkomu og leiðindar veðri. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|