Hér er halastjarnan PanStarrs, myndina tók ég um níu leitið (15/3) Nikon D40 iso400 í 5 sec. Ég fór út um hálf átta til að gera tilraun til að finna hana var með handsjónauka og var búinn að leita lengi, en enn var of bjart í firstu, þannig að ég stillti upp græjonum mínum á meðan myrkur var að færast hægt yfir. Skýja spáin sagði að frá svona um fimm eða sex leitið ætti að vera heiðrýkja sem stóðst nú ekki alveg og átti að hreinsa alveg af um kvoldmatarleitið, og ekki stóðst það heldur það bætti bara í og var nánast orðið alskýjað uppúr átta.Ég var nokkuð heppinn að það var risa gat á skýjahulunni á þeim slóðum sem halastjarnan átti að vera þannig að ég gafst ekki upp. En alltaf var ég að kýkja í handsjónaukann á meðan ég var að stilla upp tölvusjónaukanum til að vera viss um að ég myndi ekki missa af henni. En svo gerðist það, ég fann hana og var mjög hissa en samt ánægður þar sem að ég hélt að hún væri kannski farin undir fjöllin, en þar sem ég sá hana var hún bara nokkuð ofarlega og kom mér á óvart hversu ofarlega hún var svo ég hafði nógan tíma til að skoða hana og mynda. Og svo var bara að skoða og mynda og mynda, ég smellti af stannslaust þar til hún var komin undir fjöllin.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|