Fór út hér fyrir tveimur dögum að freista þess að taka einhverjar myndir. og var skotmarkið þessi vetrarbrautar þyrping sem er kölluð Markarian's Chain já af því að hún er eins og keðja í laginu. Þetta er dálítið auðvelt skotmark og er þetta bara einn rammi (ein mynd) í 2 min í brakandi norðurljósum, en ekki náðust fleiri myndir þar sem norður ljósin voru yfir þessum eina stað allann tímann, sé myndavélinni beint í norðurljósin verður myndin bara hvít, og ekkert annað á myndinni og þannig voru allar myndirnar sem ég reyndi að taka. Eins og ég hef sagt áður að þá er ekki nóg að það sé heiður himinn heldur verður hann að vera skýr líka og laus við norðurljós en þau eru mjög algeng hér og eyðilegga oftast fyrir stjörnuljósmyndun hjá mér, það er nánast undantekningar laust norðurljós þegar himinninn er heiðskýr. Á myndinni má sjá vetrarbrautir þar sem örvarnar benda, 13 stykki takk og bara ein mynd 2
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|