Hér er M13 stjörnuþyrping í Herkúlesi sem ég tók 16.mars. Þetta eru 3 myndir samtals um 8 mínútur ISO1600, unnin í Deepskystacker og photoshop. Ætli þetta sé ekki skársta tilraunin af þessu fyrirbæri til þessa. Ég náði ekki nema 4-6 myndum því að norðurljósin eiðilögðu þetta kvöld, og sama var í kvöld stjörnubjart mjög en norðurljós yfir öllu svo ekki er hægt að mynda við svoleiðis aðstæður.
Svona var sólin núna um hádegið nokkrir smá sólblettir en geta gert ursla þrátt fyrir að vera litlir, neðri bletturinn er 1433 en efri sem lýrur út fyrir að vera margir er 1434. Það er heiður himinn núna í dag en veit ekki með kvöldið, ég vona það samt og ef svo verður fer ég aðra ferð út fyrir bæinn til að fara í stjörnuljósmyndun ef norðurljósin skemma ekki allt nenni ekki að taka myndir ef það verða norðurljós, er einfaldlega orðin leiður á norðurljósum. Hrikalega mikið af norðurljósum í gærkvöld 16.mars, allur himininn lá undir. Talandi um að selja erlendum ferðamönnum norðurljósin þá væri hægt að bóka það hér á Þingeyri. Ég fór og ætlaði að fara í stjörnuljósmyndun en það gekk hálf illa þar sem norðurljósin voru út um allt. Tók samt nokkrar af M13 stjörnuþirpingunni í Herkúlesi á bara eftir að vinna hana, set hana inn fljótlega. . Júpiter og Venus voru mjög bjartar og áberandi í kvöld ég fór út um víðan völl til að finna myndefni svona við hliðina. Ég skoðaði Venus aðeins í 8 tommu sjónaukanum í kvöld svona með og sást bara þokkalega lítur út svona eins og hálft tungl. Mikill vindur eða bara dálítið kvasst var svo að sjónaukinn var altaf á flegi ferð og truflaði það töluvert. Kíkti líka aðeins á Mars í gær í gegnum 8 tommuna líka og sáum við dökk svæði þokkalega. Fór í gærkvöld í stjörnuskoðun með sjompinu, það far ekki sérlega heiðskýrt en rofaði smá til svo að það sást smá til stjarna. Ég stillti upp stæðinu en pólstillti ekki svo að ég gat ekki látið stæðið leita fyrir mig þannig að ég leitaði bara með handsettinu. Ég fór strax að leita að halastjörnunni Garradd og fann hana nánast strax, nú svo tengdi ég myndavélina og skaut nokkrum myndum en ég náði ekki að fókusa á fyrirbærið því að stjörnur voru mjög daufar séð í gegnum myndavélina, enda var þetta gert hratt og óörugglega. myndin er bara ein og kemur hér alveg úr fókus en Garradd sést þarna. En þið afsakið lélega mynd enda er þetta ekki svo auðvelt. Sólbletturinn sem ég tók mynd af fyrir tveimur dögum hefur stækkað og er nú orðinn sjö sinnum stærri en Jörðin og er enn að stækka. Bletturinn ber nafnið eða töluna AR 1429 en blettirnir eru númeraðir eftir því að þeir byrtast. Í gær 7. mars varð Kórónuskvetta að stirkleika X5 class sem er ansi mikið og verða því töluverð norðurljós næstu daga eins og komið hefur fram í fréttum. Þessa mynd tók ég um níu leitið í gærmorgun rétt áður en ég fór í vinnuna svo ég var eiginlega á hlaupum þegar ég tók hana og hún er því ekki alveg í fókus. Þegar kórónuskvettur verða svona stórar fara norðurljósin ekki bara rétt niður fyrir pólana heldur teigja þeir sig jafnvel aðeins lengra niður eftir jarðar kringlunni svo að þeir sem mjög sjaldan sjá norðurljós fá nú að sjá eitthvað af þeim. Hér yfir Dýrafirðinum eru norðurljós hinnsvegar mjög tíð og eru stundum að pirra mig í stjörnuljósmyndun. Stjörnubjart í kvöld svona til að byrjameð en svooo... í kvöld var alveg stjörnubjart enda á milli í Dýrafirðinum og mikið sjónarspil á himni first og fremst var fullt tungl stórt og tignarlegt, og þar við hliðina var plánetan Mars og svo dálítið lengra voru Júpiter og venus hlið við hlið, og ofan í allt saman voru norðurljós dansandi eins og ..... mjög fallegt og mikið og margt að sjá. Ég fór af stað út fyrir bæinn með ljósmyndunar græjurnar til að taka mynd af Halastjörnunni Garradd. Þegar ég kem á staðinn er allt eins og það á að vera heiðskýrt ag fallegur himinn. Ég set upp græjurnar og áður en ég byrja á að tengja rafmagnið langaði mig til að kýkja snöggvast hvoert ég finndi halastjörnuna og það gerði ég og smellti einni 20 secúndna mynd og kom litill hnoðri á myndina. Nú þá var ekkert nema að tengja og pólstilla stæðið og koma öllu í gang og þegar það var að verða búið og allt klárt ...... nú þá gerðist það eins og hendi væri veifað byrtust ský algerlega uppúr þurru.. ekki bara á einum stað heldur allur himininn eins og hann lagði sig og á tveim mínútum engar stjörnur. þá var pakkað saman og ekið heim í fínu skapi .. eða EKKI. Heiðskýrt í dag en veit ekki hvort það verður í kvöld, en þá er líka hægt að skoða sólina og sólbletti. Í gær var bara einn pínulítill blettur en í dag eru komnir fleiri og stærri ,, jú sólin sníst nebbilega,, sólblettir eru númeraðir í þeirri röð sem þeir birtast og heita því nafni. Þessi stærri heitir 1429 og þessi neðri minni bletturinn er 1428. Þessa mynd tók ég með logitech webcam 9000 og með sérstakt sólar filter fyrir sjónaukanum. ATH aldrei skoða sólina án viðeigandi búnaðar,, sorrý en maður verður að taka þetta fram í hvert sinn svo engin rjúki í þetta með berum augum. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|