Já þetta er skrítin mynd af sólinni sem var tekin um hádegi í dag, ég hef enga tölvu til að vinna myndir með svo ég nota bara gamlann skrjóð sem dóttir mín notar. En sólin er ansi doppótt núna og margir sólblettir og gaman að skoða hversu hratt þetta breytist, þessir sólblettir bara komu allt í einu og stækkuðu hratt núna á síðustu 3 til 4 dögum
Sól sest í Dýrafirði, svona verður þetta í júní þegar Venus læðist inná skífu sólar. Á sumrin sest sólin alltaf þarna, færist reyndar svolítið til hægri með tímanum. og svo seint í sumar fer hún niður í fjallið hægramegin. Rosabaugur um sólu hér vestra núna seinnipartinn í dag, það eru ekkert allir að taka eftir þessu því sólin er björt og beugurinn ekkert rosa sterkur, en ég tók allavegana eftir honum og smellti nokkrum myndum. Hér kemur svo skýring sem ég tók af vef veðurstofunar. Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu (oftast bliku) sem er hátt á himni. Hún inniheldur ekki vatnsdropa, heldur ískristalla, því það er yfirleitt frost svona hátt uppi. Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Ískristallarnir eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á strendinginn. Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum. Þetta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla sem hafa mátulega stefn Smá stjörnuskoðun hér í kvöld, tungl skýrt og flott, Venus, plaides, Mars, Saturn, M13 M92, M3 , norðurljós, smá myndataka en ekkert alvarlegt bara svona til að láta fylgja færslunni. Semsagt Venus og sjöstirnið áttu stefnumót í kvöld og náði ég að festa það á filmu svona því til sönnunnar, myndin er tekin í 20,sek á ISO 800 með Nikon D40, 127mm sjónauka, þetta er bara ein mynd í jpg, og alveg óunninn því að tölvan mín hrundi og hef ég ekkert til að vinna með þessa dagana, engin forrit eða neitt til að setja inn myndir. Ég skoðaði einnig venus smá í 8" sjónaukanum og einnig Mars og Satúrnus sem var lágt á lofti en hringarnir sáust þokkalega en svona mistur yfir fjöllonum gerði mikla hreifingu á satúrnusi. Á Mars sá ég dökkleit svæði en var ekkert að stækka og reyna neitt að viti að þessu sinni bara skemmtilegt að skoða. Norðurljósin voru einnig nokkuð sterk og flögrandi eins og van . |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|