Veður var mjög gott til stjörnuskoðunar hér vestra logn, kalt og heiðskýrt og mjög gott skyggni. um 8 til 10 manns komu til að glápa og notaði ég tækifærið og leifði fólki að skoða nokkur fyrirbæri í gegnum 8 tommu sjónaukann. Loftsteinarnir vildu ekki vera þar sem ég var búinn að beina myndavélinni en nokkrir komu samt á mynd. Ég átti hér gamla mynd af flame nebula sem ég var sennilega ekki búinn að pósta. Þetta eru um 39 mínútur á iso 1600 Nikon d40, þetta er stafli frá tveimur kvöldum með löngu millibili og aðstæður ekki þær sömu bæði kvöldin. Hesthausinn sést þarna bara nokkuð vel. Annað kvöldið var ég ekki kominn með filterið þannig að stjörnurnar bólgnuðu út, en seinni myndirnar var ég kominn með filterið til að eyða blámanum, og þessvegna er Halastjarnan 168p samsett í vídeo. Myndirnar eru 24 raw myndir lagaðar aðeins til. Á vídeóinu sést halastjarnan færast þó nokkuð enda myndirnar teknar á 3mur tímum. Myndavélin er Nikon D40 stillt á ISO 1600, myndirnar eru teknar sumar á 3 min og aðrar uppí 4 mínútur. Comet 168P er halastjarna sem er nú stödd í stjörnumerkinu Vængfákur eða Pegasus. Ég var búinn að lesa smá um að hún væri þarna og að hún væri ekkert sérstaklega björt, en ég fann hana og náði nokkrum myndum. Á þessari mynd sést hún þarna fyrir miðju myndarinnar. Var að taka vídeó af tunglinu um daginn og tók eftir því að eitthvað flaug framhjá, hélt að það væri fugl en ég er búinn að stækka svo mikið að tunglinu með myndavélinni á sjónaukanum að þetta gæti ekki verið fugl,,,, í svarta myrkri,,,, fugl nálægt mér við þessa stækkun hefði blokkerað myndina alveg, Þannig að ég held að þetta gæti verið geimrusl að þjóta framhjá. M101 vetrarbraut í karlsvagninum, mynd sem ég tók um daginn 9 nýjar myndir en 6 gamlar frá fyrri vetri staflaði saman og fiktaði svolítið. Myndirnar eru samtals 54 mínótur, 4myndir á ISO 800, og 11 myndir ISO 1600, málið er að ég vsr búinn að stafla gömlu myndonum og vista þær og svo staflaði ég nýju myndonum og vistaði þær og svo staflaði ég þessum tveimur saman og útkoman er þessi. þegar ég staflaði þessum tveim myndum setti ég enga svarta ramma, kannski vantar bara miklu fleiri svarta til að ná að dekkja bakgrunninn. Nikon D40 127mm refractor total 54 min iso 800= 4 Iso 1600= 11 |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|