Núna í kvöld 27. júlí sá ég fyrstu stjörnur svona um eða uppúr klukkan eitt, kannski af því að ég fór að kýkja eftir þeim hefði örugglega séð þær fyrr því að þær eru nokku bjartar á himni. Altaír, Vega og Deneb eða sumar þríhyrningurinn voru nokkuð greinilegar og sá ég einnig Arktarus og Capella mjög vel. Mig hlakkar mikið til að fara að taka upp græjurnar aft
Hér er mynd af Satúrnusi sem ég tók veturinn 2010-2011, þetta eru rammar úr vídeói staflað í registax. Vídeóið var tekið á Sony DCR í gegnum 20mm augngler á 8 tommu dobson sjónaukanum. Ég var að reyna að laga hana og gera hana skarpari svo hún er aðeins betri núna. Þetta eru mjög fáir rammar svo að ég veit að ég get gert miklu betur, þetta vídeó var allt á hreyfingu þannig að ég náði ekki nema kannski 10-20 römmum til að stafla, með góðu vídeói sem myndin er nokkuð kyrr er auðvelt að ná 200- 300 römmum og stafla. Satúrnus verður ekki á himni í vetur nema þá lágt á lofti rétt áður en sól rís að morgni. Ný vefmyndavél frá Dýrafirði, mjög skörp og góð myndavél.
Myndin er Lifandi hreyfimynd eða svona vídeóstreymi, sést vel hvernig viðrar hjá okkur hér vestra. Þingeyri er þarna vinstra megin svo er horft út fjörðinn. Hægt er að hægrismella og stækka myndina í fullscreen. Linkurinn er hér |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|