Það var fallegur himininn á fimmtudagskvöldið, og leiðinlegt að hafa ekki tekið myndir af einhverri vetrarbrautinni eða einhverju en allt var ófært og hvergi hægt að fara utanvegar með tækin. Hér er sýnishorn af himninum , og þess má geta að þetta er um 3-5 minótna akstur á bak við fjallið sem Þingeyri stendur við en þarna er engin ljósmengun og alveg fullkominn staður til stjörnuljósmyndunar.
Stjörnubjart hér vestra eftir þennann blessaðann sjnóstorm sem geisaði yfir síðustu daga, svo dettur bara í logn og heiðan himinn. Ég ætlaði að fara í myndatökur með græjurnar mínar en sökum ófærðar kommst ég hvorki lönd né strönd, ég fann engan stað til að stilla upp dótinu svo ég hætti við. En himininn var nánast fullkominn fyrir myndatökur og fannst mér hund fúlt að geta ekki gert það. Ég tók myndir af norðurljósum í staðin til að gera eitthvað. Hér er verkefnið okkar hér heima í stofu, vorum að dunda okkur við þetta í gærkvöld ég og dóttir mín. Þetta er semsagt Hubble sjónaukinn frægi sem tekur allar geggjuðu myndirnar utan úr geiminum. Þetta á að vera 4ra tíma verkefni fyrir 12 ára alsekkert flókið en tekur tíma að klippa það út. þetta er prentað út á A4 blað væri betra að nota harðari pappír, hægt að downlóda því hér. Þetta er fínt verkefni fyrir krakka sem vita hvað þetta er og hafa áhuga á stjörnufræði, en ef þau vita ekki hvað þetta er og hafa engan áhuga, þá er þetta nú bara as Hér er Rósin eða bara Rosette nebula sem að er dálítið stór þoka á himninum. Þokuna er að finna á milli stjörnumerkjanna Órion og Tvíburanna, en auðvitað sést hún ekki með berum augum en ég vissi nákvæmlega hvar hún var og beindi sjónaukanum á litla stjörnuþyrpingu sem nefnist NGC 2244 og er hún í miðju rósarinnar, þessa þyrpingu sá ég með berum augum. Þessi mynd er eiginlega alveg hræðileg, lýsingartíminn of langur svo að stjörnurnar voru ekki punktar heldur drógust þær til, Ég tók bara 6 myndir en bara tvær eða þrjár voru nothæfar, svo var stillingin ISO 1600 svo þar kemur mikið suð í myndina (noise) en Rósar þokan sést alveg og læt ég hana koma hér. Ekki eru mörg tækifæri til að fara og taka myndir þannig að þennann firsta vetur með þessum græjum mínum ætla ég bara að finna mig í þessu og pósta svona flestum myndum sem ég tek sumar eru góðar en aðrar verri en það verður að hafa það, ég læri bara á þessu og kannski aðrir líka, þetta sýnir líka að þetta er alls ekkert auðvelt að taka stjörnumyndir, þolinmæðin og allt það, þegar búið er að taka 10 myndir eru kannski ekki nema helmingurinn nothæfur, og hver mynd er nærri 5 minútur úti í frosti og kulda. Info: 3x 4,5 min og 5x 4min darks ISO 1600 Nikon D40 6megapixel 127mm refracting telescope Stjörnubjart hér vestra í gærkvöld, mjög fallegt veður oalveg hreinn himinn svo að aðstæður voru mjög góðar. Vetrarbrautarslæðan sást mjög vel og stjörnur líka. Ég fór með græjurnar og tók myndir en ég á eftir að vinna þær. Ég smellri hér nokkrum myndum af norðurljósum sem voru falleg að vanda en þau trufluðu mig ekki fyrr en alveg í restina þegar ég var að pakka saman, þá tók ég þessa mynd og má sjá þar sem ljósin frá bænum eru, þar má sjá hve björt norðurljósin voru því að þau spegluðust í sjónum á firðinum. Hér eru Júpiter( vinstri) og Venus (hægri) núna um kl: 6 gaman að sjá tvær svona bjartar stjörnur á himni sem eru náttúrulega ekki stjörnur heldur plánetur. Júpiter og venus eru björtustu fyrirbærin á himni núna og eru þær bara mjög bjartar. Mér finnst Venus vera mun bjartari svona að horfa með berum augum. Jæja stjörnubjart hér vestra í kvöld og planið er að fara í smá stjörnuskoðun vonandi að tunglið trufli ekki mikið.
Ég er þegar búinn að sjá fjórar af reykistjörnunum okkar í dag , Satúrnus og Mars í morgun um átta leitið, og Júpiter og Venus núna um fimm leitið. Venus var enn hátt á lofti og mjög bjartur þó svo að enn væri bjart, Sömu sögu var að segja um Júpiter. Ekki er stefnt á myndatökur í kvöld þó að búnaðurinn verði væntanlega tekinn með. Jæja fyrirséð að himnarnir opnist á morgun mig langar í smá stjörnuskoðun annað kvöld tek væntanlega engar myndir nema þá af tunglinu þar sem það er nánast fullt. Svokölluð súpernóva hefur uppgötvast í Stjörnumerkinu Ljónið nánar tiltekið í óreglulegri vetrarbraut sem kallast NGC 3239. Þetta er semsagt stjarna sem endar ævi sína með sprengingu, hún fannst 7 janúar með 16 tommu sjónauka og var þá birtustig hennar um 14,6 svo daginn eftir 14,4 og nýlega 13,9 þannig að hún verður bjartari og bjartari og ætti kannski að sjást með 8 til 10 tommu sjónauka en samt á mörkum þess. Ég geri ekki ráð fyrir að við sjáum hana hér þó að ljóns merkið sé að hækka á lofti, því að tunglið er núna nánast á þeim stað sem súpernóvan er.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|