Tunglið að kíkja hér í gegnum skýin, sást einnig til nokkurra stjarna en skýin á flegi ferð og eginlega ekki stjörnubjart, það er hálfpartinn rigning en kemur svona gat á skýin á milli þar sem sést til stjarna. Myndin tekin núna í kvöld (28 feb.)
Satúrnus hefur verið sjáanlegur þar sem hefur verið heiðskýrt og sjást hringar hanns vel sökum afstöðu þeirra. Ég tók þetta vídeó í fyrravetur með vídeóvél við augnglerið á 8" sjónaukanum. Það er lítið um að vera í stjörnuskoðun þar sem lægðirna koma hver á eftir annari og ekkert útlit á heiðum himni framundan. Ég sá í veðurspánni að það ætti að vera heiðskírt áðfaranótt laugardags hér fyrir vestan, svo sáust nokkrar stjörnur um kvöldið þannig að ég var bjartsýnn um að svo yrði. Ég vaknaði svo um 3 leitið og þá var stjörnubjart svona nánast yfir allann himininn svo ég dreif mig af stað og ætlaði að taka nokkrar myndir, þegar á staðinn var komið var þokkalega bjartur himinn en eftir c.a 10 minútur var eins og ský byrtust bara og eftir smá stund sást voða lítið. Samkvæmt spánni átti að vera bjart milli 3 og kannski 7 um morguninn þannig að ég hélt að ég hafi verið of fljótur ámér svo ég fór heim aftur og lagði mig til kl:5 þá kýkti ég út um gluggann og þá var heiður himinn svo ég rauk af stað aftur og það var enn bjartara en áður og skyggni mjög gott og stjörnubjart alveg niður allann sjóndeildarhringinn. Ég byrja að taka upp dótið og stilli upp dótinu og ég er ekki búinn að klára að setja upp stæðið þegar ég sé að ský fara að myndast upp úr þurru eins og áður, og sama eftir um 10 til 15 minútur var allt orðið hulið þykkum skýjum nema nokkrir smá staðir sem sást í gegn, er þetta ekki dæmigert hel........ ég get svarið það ég öskraði upphátt þar sem ég stóð einn úti í villta vestrinu og bölvaði og bölvaði. Svo var farið heim og grjót sofið fram á hádegi.
Takk fyrir túkall. Birti aðeins til hér vestra í kvöld og sást til stjarna, lélegt stjörnuskyggni þó en alltaf gaman að kíkja aðeins út. Ég fékk lánaðan handsjónauka hjá pabba gamla og er það ótrúlegt hvað er hægt að sjá með handsjónauka. Ég skoðaði lausþyrpingarnar M35-M36- M37- M38- M103- M45- Double cluster - og svo varð ég að reyna við halastjörnuna Garradd sem er núna í stjörnumerkinu Herkúles sem var þó nær allann tímann hulinn skýjum eða einhverri slæðu, en ég náði að finna M13 kúluþyrpinguna og M92 með handsjónaukanum sem voru rosa daufar en ég veit nákvæmlega hvar þær eru svo það var ekkert mál, en út frá þeim rakti ég mig uppá við og fann Garradd halastjörnuna sem lítinn þokublett. Ég held að þetta verði auðvelt skotmark fyrir stjörnuljósmyndun næst þegar ég fer að mynda Garradd á nefnilega eftir að hækka á lofti og verða bjartari. Tunglið góða kom upp og var hulið skýjamóðu og myndast þá svona hringur eða ljósbjarmi í skýjin kringum tunglið sem er mjög fallegt að sjá og auðvelt að mynda. Þessa mynd tók ég 4. september af Halastjörnunni Garradd, ég vonast til að ná betri mynd ef veður leyfir á næstunni allavegana verður þetta fyrsta skotmark þegar veður leyfir. Þetta er annars meiri skíta veðráttan sem við fáum hér á íslandi og er sérstaklega slæmt fyrir stjörnuáhugamenn, þetta drepur líka niður áhugann hjá mörgum og ekki þorir neinn að fjárfesta í búnaði sem ekki er hægt að nota nema nokkrum sinnum á ári. Ég hef ennþá alveg fullann áhuga á þessu þó að ekki sé hægt að fara oft út í stjörnuskoðun. Smíðaði mér ferðakassa undir sjónaukann til að auðvelda mér flutning með græjurnar út fyrir bæinn, einnig passar EQ3 stæðið í kassann líka og allar snúrur og allt sem fylgir stæðinu nema þrífóturinn. Nú þarf ég bara að bera þennann kassa út í skottið á bílnum og þrífótinn þá er allt komið. Áður voru svo margar ferðir út í bíl með allt dótið og passa þurfti að sjónaukinn yrði ekki fyrir hnjaski frá öðru dóti í bílnum, en nú er allt leist með nýja kassanum frá Jonson og vium. Halastjarnan Garradd er aftur komin, nú er hún að renna í gegnum stjörnumerkið Herkúles og núna 3 febrúar verður hún á sömu slóðum og kúluþyrpingin M92. Menn erlendis segja að birtustig hennar sé um 6 svo að hún er sýnileg í gegnum litla stjörnusjónauka eða jafnvel handsjónauka. Gaman væri nú að ná myndum af þessari enn og aftur. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|