Fullt tungl er fallegt hér í Dýrafirðinum þegar aðstæður eru svona, logn og heiðrýkja, litirnir ótrúlegir þegar tunglið skríður upp úr fjöllonum innst í fjarðar botninum.
,
Stjörnuskoðun frá Þingeyri |
|
Fullt tungl er fallegt hér í Dýrafirðinum þegar aðstæður eru svona, logn og heiðrýkja, litirnir ótrúlegir þegar tunglið skríður upp úr fjöllonum innst í fjarðar botninum. , Panstarrs halastjarnan hátt á himni og sést vel. Ég skoðaði hana með handsjónauka út um herbergisgluggann hjá dóttur minni og öll fjölskyldan gerði það einnig,, bara næs, sá hana með berum augum út um gluggann. Skellti mér svo í bíltúr og tók nokkrar myndir. Um 20 manns mættu í stjörnuskoðun hér á Þingeyri og fengu að dást að halastjörnunni Panstarrs. Tók smá tíma að finna hana en eftir að hún var fundin setti ég tölvustýrða sjónaukann á hana og týndum henni ekki eftir það. Þegar myrkur var orðið meira sáu hana allir með berum augum stórir sem smáir. skemmtileg upplifun fyrir alla. , . Hér er halastjarnan PanStarrs, myndina tók ég um níu leitið (15/3) Nikon D40 iso400 í 5 sec. Ég fór út um hálf átta til að gera tilraun til að finna hana var með handsjónauka og var búinn að leita lengi, en enn var of bjart í firstu, þannig að ég stillti upp græjonum mínum á meðan myrkur var að færast hægt yfir. Skýja spáin sagði að frá svona um fimm eða sex leitið ætti að vera heiðrýkja sem stóðst nú ekki alveg og átti að hreinsa alveg af um kvoldmatarleitið, og ekki stóðst það heldur það bætti bara í og var nánast orðið alskýjað uppúr átta.Ég var nokkuð heppinn að það var risa gat á skýjahulunni á þeim slóðum sem halastjarnan átti að vera þannig að ég gafst ekki upp. En alltaf var ég að kýkja í handsjónaukann á meðan ég var að stilla upp tölvusjónaukanum til að vera viss um að ég myndi ekki missa af henni. En svo gerðist það, ég fann hana og var mjög hissa en samt ánægður þar sem að ég hélt að hún væri kannski farin undir fjöllin, en þar sem ég sá hana var hún bara nokkuð ofarlega og kom mér á óvart hversu ofarlega hún var svo ég hafði nógan tíma til að skoða hana og mynda. Og svo var bara að skoða og mynda og mynda, ég smellti af stannslaust þar til hún var komin undir fjöllin. Fór út hér fyrir tveimur dögum að freista þess að taka einhverjar myndir. og var skotmarkið þessi vetrarbrautar þyrping sem er kölluð Markarian's Chain já af því að hún er eins og keðja í laginu. Þetta er dálítið auðvelt skotmark og er þetta bara einn rammi (ein mynd) í 2 min í brakandi norðurljósum, en ekki náðust fleiri myndir þar sem norður ljósin voru yfir þessum eina stað allann tímann, sé myndavélinni beint í norðurljósin verður myndin bara hvít, og ekkert annað á myndinni og þannig voru allar myndirnar sem ég reyndi að taka. Eins og ég hef sagt áður að þá er ekki nóg að það sé heiður himinn heldur verður hann að vera skýr líka og laus við norðurljós en þau eru mjög algeng hér og eyðilegga oftast fyrir stjörnuljósmyndun hjá mér, það er nánast undantekningar laust norðurljós þegar himinninn er heiðskýr. Á myndinni má sjá vetrarbrautir þar sem örvarnar benda, 13 stykki takk og bara ein mynd 2 |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|