Picture
Risa sólblettur á sólinni núna, sólbletturinn nefnist AR1476 og er með þeim stærri sem sést hafa. sólbletturinn er um 100.000 km enda í enda sem er ansi stórt á Jarðar mælikvarða.

 
The Moon. 05/03/2012
 
Picture
Sælir ég tók hérna mynd af tunglinu nú í kvöld, en núna 5-6 maí á að vera svona súper moon þá er tunglið fullt  verður eins stórt og það getur orðiðeða okkur sýnist það allavegana. , það er þegar tunglið kemst næst Jörðu sýnist það stærra heldur en þegar það er fjær ,, augljóst er það ekki. Það var rosalega fallegt veður nú í kvöld hér fyrir  vestan alveg logn og heiðskýrt.

 
Doppótt sólin. 04/21/2012
 
Picture
Já þetta er skrítin mynd af sólinni sem var tekin um hádegi í dag, ég hef enga tölvu til að vinna myndir með svo ég nota bara gamlann skrjóð sem dóttir mín notar. En sólin er ansi doppótt núna og margir sólblettir og gaman að skoða hversu hratt þetta breytist, þessir sólblettir bara komu allt í einu og stækkuðu hratt núna á síðustu 3 til 4 dögum

 
 
Picture
Sól sest í Dýrafirði, svona verður þetta í júní þegar Venus læðist inná skífu sólar.
Á sumrin sest sólin alltaf þarna, færist reyndar svolítið til hægri með tímanum. og svo seint í sumar fer hún niður í fjallið hægramegin.

 
 
Picture
Rosabaugur um sólu hér vestra núna seinnipartinn í dag, það eru ekkert allir að taka eftir þessu því sólin er björt og beugurinn ekkert rosa sterkur, en ég tók allavegana eftir honum og smellti nokkrum myndum.
Hér kemur svo skýring sem ég tók af vef veðurstofunar.

Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu (oftast bliku) sem er hátt á himni. Hún inniheldur ekki vatnsdropa, heldur ískristalla, því það er yfirleitt frost svona hátt uppi.

Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Ískristallarnir eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á strendinginn.

Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum. Þetta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla sem hafa mátulega stefn

 
 
Picture
Smá stjörnuskoðun hér í kvöld,  tungl skýrt og flott, Venus, plaides, Mars, Saturn, M13 M92, M3 , norðurljós, smá myndataka en ekkert alvarlegt bara svona til að láta fylgja færslunni. Semsagt Venus og sjöstirnið áttu stefnumót í kvöld og náði ég að festa það á filmu svona því til sönnunnar, myndin er tekin í 20,sek á ISO 800 með Nikon D40, 127mm sjónauka, þetta er bara ein mynd í jpg, og alveg óunninn því að tölvan mín hrundi og hef ég ekkert til að vinna með þessa dagana, engin forrit eða neitt til að setja inn myndir. Ég skoðaði einnig venus smá í 8" sjónaukanum og einnig Mars og Satúrnus sem var lágt á lofti en hringarnir sáust þokkalega en svona mistur yfir fjöllonum gerði mikla hreifingu á satúrnusi. Á Mars sá ég dökkleit svæði en var ekkert að stækka og reyna neitt að viti að þessu sinni bara skemmtilegt að skoða. Norðurljósin voru einnig nokkuð sterk og flögrandi eins og van


Picture
.

 
 
Picture
Hér er M13 stjörnuþyrping í Herkúlesi sem ég tók 16.mars. Þetta eru 3 myndir samtals um 8 mínútur ISO1600, unnin í Deepskystacker og photoshop. Ætli þetta sé ekki skársta tilraunin af þessu fyrirbæri til þessa. Ég náði ekki nema 4-6 myndum því að norðurljósin eiðilögðu þetta kvöld, og sama var í kvöld stjörnubjart mjög en norðurljós yfir öllu svo ekki er hægt að mynda við svoleiðis aðstæður.

 
Svona er Sólin. 03/17/2012
 
Picture
Svona var sólin núna um hádegið nokkrir smá sólblettir en geta gert ursla þrátt fyrir að vera litlir, neðri bletturinn er 1433 en efri sem lýrur út fyrir að vera margir er 1434. Það er heiður himinn núna í dag en veit ekki með kvöldið, ég vona það samt og ef svo verður fer ég aðra ferð út fyrir bæinn til að fara í stjörnuljósmyndun ef norðurljósin skemma ekki allt nenni ekki að taka myndir ef það verða norðurljós, er einfaldlega orðin leiður á norðurljósum.

 
 
Picture
Hrikalega mikið af norðurljósum í gærkvöld 16.mars, allur himininn lá undir. Talandi um að selja erlendum ferðamönnum norðurljósin þá væri hægt að bóka það hér á Þingeyri. Ég fór og ætlaði að fara í stjörnuljósmyndun en það gekk hálf illa þar sem norðurljósin voru út um allt. Tók samt nokkrar af M13 stjörnuþirpingunni í Herkúlesi á bara eftir að vinna hana, set hana inn fljótlega.

Picture
.