M108 er lítil vetrarbraut í Karlsvagninum eða Stóra Birni, hún sést frá okkur á rönd þannig að ekki mikið að sjá annað en þetta. Ég hefði getað stækkað hana með því að nota svokallaða barlow linsu en það var ekki úr því, þetta eru þrjár myndir 80sek. Nikon D3100. Iso 3200.
Náði hér mynd af M82 vetrarbrautinni, þar hefur stjarna sprungið fyrir nokkrum milljónum ára, og sést hún mjög greinilega. Þessi mynd er bara ein ekki stafli af mörgum, norðurljós sveimuðu yfir þetta svæði svo ekki var hægt að mynda mikið. seinna kom skýja hula sem lagðist yfir allt svona annað slagið. Kíkti líka á sprengistjörnuna með 8 tommu sjónaukanum og sá ég hana greinilega. skoðuð voru önnur fyrirbæri eins og Júpiter M81 0g 82 , M1, M97 M45, og eitthvað fleira. Ég og dóttir mín 10 ára fórum út að skoða Júpiter og tunglið. Veðrið var afskaplega gott stjörnubjart og logn, svolítið kalt en það er nú í lagi. Júpiter var bara mjög skýr og góður sást vel og sömuleiðis tunglið. Tók smá videó af Júpiter og staflaði í eina mynd, ekkert sérstök, en bara prufa til að gera eitthvað. Svona var útlitið í kvöld, stjörnubjart tungl, svolítill vindur, ég fór með átta tommu sjónaukann út á gangstétt og skoðaði Júpiter og tunglið, bæði komu ágætlega út, vindurinn stóð samt inn í túbuna og allt á hreifingu, svolítil ókyrrð í lofti sem gaf ekki alveg skýra mynd, sá samt skýjabeltin á skífunni og tunglin fjögur skörtuðu sínu. Tunglið var bjart og fallegt og gígarnir skarpir og góðir við mikla stækkun mjög gaman að skoða ,, svolítið langt síðan ég nennti að skoða tunglið. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|