Hallo, hallo , dj... er hún flókin þessi ég sem hélt að ég næði góðri mynd út úr fleiri myndum, en varla gerðist það svo auðveldlega. Þessi pacman þoka virðist þurfa langan lýsingartíma og margar myndir til að stafla. Þessi er tekin í 5x5 min og 4x 4,5 minútur samtals 43 minútur. Búinn að eiða miklum tíma í greyið og nennti bara ekki meir litirnir í rugli og allt, en það er hægt að sjá pacman hausinn út úr þessu. En ég verð að reyna við þessa aftur við betra tækifæri. Það er búið að vera stjörnubjart svona af og til nánast öll kvöld svona eitthvað yfir jólin þó voru ský alltaf til staðar til að trufla og oftast dró fyrir þegar ég fór út með græjurnar. Ég er yfirleitt ekkert að fara eftir spánni því að þeð er ekkert að marka þessa skýjahuluspá, stundum er spáð alskýjuðu og snjókomu kannski allt kvöldið en svo er það ekki, heiðríkja í staðinn allt kvöldið, stundum er himininn lang hreinastur og tær þegar spáir rigningu vetrarbrautin sýnileg og allt. En svona er þetta bara, vona að þetta fari að koma eitthvað meira hjá félögum mínum fyrir sunnan.
Hér er einn rammi sem ég tók af Pacman þokunni, hún er tekin í nær fimm mínútur á ISO 1600 með Baader contrast booster síunni, ég er aðeins búinn að eiga við hann til að skerpa á þokunni sjálfri ég vona að ég geti tekið kannski tíu svona til að stafla saman í næstu lotu, svo er gott að hafa hana á miðjunni á myndinni, en málið var nú þannig að þessar tvær björtu stjörnur voru miðpunkturinn hjá mér í myndavélinni en ég fór aðeins til hliðar einhverra hluta vegna og ég bara vissi ekki að þokan væri akkúrat á annari björtu stjörnunni. Þetta verður næsta target. Ég fór út nú í kvöld með græjurnar, stjörnubjart svona af og til, þegar ég var búinn að stilla upp þá var orðið albjartur himinn. Ég var að reyna að finna pacman þokuna, ég hef aldrei myndað hana svo ég beindi sjónaukanum bara á þann stað sem ég hélt að hún væri og skaut nokkrum myndum en sá ekki þokuna birtast á myndonum svo ég hætti við það fyrirbæri tók hér tvær myndir af Double cluster í staðinn. Svo dró fyrir allt saman og ég pakkaði saman dótinu og fór inn. Þegar inn var komið setti ég myndavéla kubbinn í tölvuna og fór að skoða myndirnar og sá þá að ég var á réttum stað með pacman þokuna hún sást á myndonum sem voru fáar og alls ekki hægt að stafla. en ég er staðráðinn í að prufa aftur næst þegar viðrar. Gleðilega hátíð stjörnu vinir. Ég fékk mér nýja vefmyndavél um jólin sem ég ætla að breita fyrir sjónaukann, það er Logitech webcam pro 9000 hún er þokkalega ljósnæm, til dæmis beindi ég henni hér út um gluggann og sá ég stjarnu fyrir ofan hús nágrannans á skjánum það var stjörnubjart að sjálfsögðu. Ég ætla að reyna að nota hana á plánetur og kannski að reyna að gæda stæðinu með henni. Þetta kemur allt í ljós þegar ég er búinn að breyta henni. Hér má sjá mynd af stjörnunni Mirach sem ég tók á laugardagskvöldið. Rétt fyrir ofan hana hægramegin er vetrarbrautin NGC 404. NGC 404 er lítil vetrarbraut staðsett um 10 milljónir ljósár í burtu í stjörnumerkinu Andromeda. Hún var uppgötvuð af William Herschel árið 1784, og er sýnileg í gegnum litla stjörnusjónauka. Hún er mjög nálægt stjörnunni Mirach, sem gerir erfitt að skoða eða ljósmynda og hefur hún því gælunafnið "MirachGhost ". Stjörnubjart hér vestra í kvold, kom svolítið á óvart að það hafi orðið svo því að það spáði skýjuðu hér. En first það var stjörnubjart þá komst ég út með græjurnar og nýju síuna frá Baader og reyndist hún bara vel bláminn nánast alveg horfinn, ég á eftir að prufa þetta betur seinna. En skotmörk kvöldsinns var meðal annars M45, The Plades eða bara sjöstirnið. Ég tók 7 x 300 sek myndir ISO 1600 og sést þokan sem umlikur stjörnurnar bara ágætlega. Nokkrar af myndonum voru teknar með krossspjald fyrir framan sjónaukann og koma spækar á stjörnurnar út frá því. Hægt er að sjá stærri útgáfu í myndaalbúminu. Ég tek eftir því að auðveldara er að vinna myndirnar þegar þessi blámi er ekki að trufla, ég á samt eftir að læra á það hvernig ég mynda með filterinu, ég má ekki fara yfir 5 min þá fara stjörnurnar að dragast til ég er ekki með audoguide úr tölvunni sem kemur kannski seinna. Jæja, Nýtt filter komið í hús, þetta er Baader contrast booster sem á að eyða burt blámanum í kringum stjörnurnar ásamt því að auka contrast og skerpu í myndunum. Filterið er ætlað meðal annars fyrir hraðan acromat linsusjónauka eins og minn. Filterið keypti ég frá USA , Agena Astroproducts og var hröð og góð þjónusta. Filterið kostaði um 10þús. Nú er bara að fá stjörnubjartan himinn til að prufa filterið. Hér er mynd sem ég tók af Veil nebula 26. nov einhverjar 6 myndir, 3x 2 min og 3x 3min, samtals 15 minútur, svo voru 5 svartir rammar. Ég áhvað að láta hana koma hér til að hreifa bloggið. Þetta er léleg mynd þetta var svona í restina rétt áður en ég pakkaði saman dótinu.ég ætla að reyna betur við hana þessa við tækifæri. Spáin er ekkert góð framundan enda kannski allt í lagi þar sem það er tungl. Hér er smá sýnikennsla sem ég og dóttir mín Hanna Gerður vorum að búa til um kvartilskipti tunglsinns. Við vorum með svona hljóðfærahristu og celestron rafstöðina með stóra ljóskastaranum og svo vídeóvélina á standi, dóttir mín lærði bara svolítið á þessu hvernig þetta virkar allt saman. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|