Vega
Það gerði stjörnubjartan himinn hér vestra í kvöld 18. okt og ég rauk út, ætla nú ekk að missa af þessu. Ég var búinn að smíða mér spjald úr pappa með kross vír yfir til að setja fyrir framan sjónaukann og svo átti semsagt að reyna að gera svona spæka á bjartar stjörnur, og já það virkar sko alveg eins og sjá má á þessari mynd af Vegu sem ég tók nú í kvöld með þessum merkilega og ódýra búnaði. Ég tók einnig myndir af öðrum björtum stjörnum til að prufa græjuna og virkaði ágætlega.
Og hér er Subaru merkið.