Hittingur áhugamanna um stjörnuskoðun var á miðvikudaskvöld í félagsheimilinu á Þingeyri. Mættu um 15 manns sem var bara mjög gott miðað við svona litinn stað. Stjórnendur hittingsinns Jón Sig og Sverrir Guðmundsson voru ánægðir með þáttöku heimamanna. Sverrir var með fyrirlestur um stjörnuskoðun að hausti og kynningu á stellarium forritinu, einnig voru sýndir loftsteinar og sjónaukar áhugamanna á Þingeyri en sjónaukarnir voru 10 talsins af öllum stærðum og gerðum. Ekki var hægt að fara í stjörnuskoðun eftir hittinginn en það verður hægt fljótlega.
Sólbletturinn AR 1302 er ansi stór eins og sést á þessari mynd sem ég tók í morgun um átta leitið. Það hljóta að koma góðar skvettur úr þessu með tilheyrandi norðurljósum og látum. Það er alveg dæmigert þegar tunglið er farið í mirkrið og himininn dökkur og fínn að þá skuli norðurljósin taka við, jáá sorrí en fyrir myndatökur er það hundleiðinlegt,, fyrir ferðamenn og útlendinga er þetta voða flott en hér fyrir vestan er þetta bara svo algengt að maður fer að fá leið á þessu. Þessi mynd er tekin af loftinu í stofunni, sjónaukinn án filters og beint opp í loftið þar sem bletturinn kemur svona líka skýrt og greinilega í ljós og einnig hulan sem er í kringum sólblettinn. Aðeins út áðan skoðaði Andromedu vetrarbrautina M31, tók líka 3 myndir og staflaði saman. Það rofaði til svona stöku sinnum og varð alveg geisilega stjörnubjart, héðan úr garðinum hjá mér. Það spáir nú bara rigningu framundan og ekkert stjörnuveður í kortonum. Maður verður bara að vera þolinmóður. Skrapp uppí sveit hér á milli skýja í kvöld það gerðist nokkrum sinnum að það ringdi og svo stytti upp á milli og þannig var að það var bara verulega stjörnubjart og geggjaður himinn fyrir stjörnu gláp í nokkurn tíma á milli. Ég tók hér myndir af M27 þokunni 4 myndir samtals 7 minútur og einhverjir svartir, vélin Nikon D40 stillt á ISO 800, svo var staflað í Dss og svo frv,,,, þetta fer að koma vonandi, það besta var að tunglið var á bakvið fjall og hulið skýjum líka svo að það truflaði ekki mikið. Ég var að prufa að vinna aðeins með myndir af M101 vetrarbrautinni, þetta eru 7 myndir staflaðar í Dss og önnur vinnsla í photostudio 5. myndirnar eru 2 til 3 minútur á Iso 800 og 1600. Ég var að reyna að bæta myndvinnsluna að eins vona að þetta sé ágætt. Þarna sést að ég held súpernóvan,, bjarti punkturinn neðarlega í vetrarbrautinni, er semsagt stjarna sem sprakk fyrir nokkrum milljónum ára en ljósið frá henni var að koma til okkar fyrir tæpum mánuði og er birtan frá henni kannski í hámarki núna. Ég tók hér eina mynd af M13 þyrpingu í Herkúles þetta er bara ein mynd ég tók tvær en þær eru ekki staflaðar mér fannst þessi bara fín. þetta er ein og hálf mín iso 800 bara gott. Ég skoðaði nokkur fyrirbæri líka þetta kvöld en myndatakan tókst það vel að mig langaði til að mynda 100 fyrirbæri þetta kvöld ég varð svo spenntur að sjá hvernig þessi kæmi út... og svo þesssi. og.. æi já fór svolítið framúr mér, en þetta virðist virka vel og nú er bara að læra að stafla og vinna myndir svona þegar búnaðurinn er orðinn góður. Ég náði hér að mynda halastjörnuna Garradd 3 myndir 3min á iso 800 staflað í dss. myndirnar mættu vera fleiri en þetta eru bara mínar fyrstu prufur með þennann sjónauka semer 127mm linsusjónauki og Nikon D40 myndavél. En nú fæ ég loksinns almennilegar myndir úr þessu öllu saman. Tók líka myndir af öðrum fyrirbærum sem tókust ágætlega, allavegana mun betra en ég hef áður gert. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|