Fór aðeins út í gærkvöld, það átti að vera heiðskýr himinn um miðnætti en það var ekki fyrr en um eitt leitið sem skýjin voru farin að mestu. Tunglið var nánast fullt og bjart yfir öllu svo ekki sáust nema björtustu stjörnur, ég reyndi að mynda en tunglið er bara svo bjart að það tókst ekkert maður sér ekkert. Svo dró fyrir ský yfir allt rétt fyrir tvö svo ég pakkaði saman dótinu og fór að sofa. Ég vaknaði einhverja hluta vegna um fjögur og kíkti út um gluggann og þá var albjartur himinn og tunglið farið á bak við fjöllin en samt bjarmi frá því, þá var t.d Órion kominn hátt á loft og fleiri spennandi stjörnumerki. Ég tók hér enokkrar myndir af M57 sem voru allar lélegar en læt fylgja hér með færslunni, þetta er bara ein mynd ekki stafli af mörgum, læt hana bara með til að lífga uppá færsluna.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|