Stjörnubjart hér vestra í kvöld 11. oktober, Það var fullt tungl og ekkert spennandi að fara út í stjörnuskoðun, en það er bara svo gaman að maður lætur ekki svona bjart kvöld framhjá sér fara. Ekki mikið var að sjá í sjónskoðun en ég reyndi að taka nokkrar myndir og það er eins og það er á fullu tungli,,, bara alltof bjart. Ég áhvað því að taka myndir af lausþyrpingum en ekki neinum þokum í þetta skiptið og var ég búinn að áhveða að skjóta á þyrpingu sem kallaðist ET cluster eða NGC 457, og heppnaðist það ágætlega, ekki samt alveg nógu ánægður með útkomuna. Tók einnig mynd af double cluster og m13 stjörnuþyrpingunni í Herkúlesi. En sú mynd sem heppnaðist best í þetta skiptið var M92 (sem er hér í færslunni) sú stjörnuþyrping er einnig í Herkúlesi, myndirnar eru 7 talsins staflaðar í Deepsky stacker, myndavéllin Nikon D40 stillt á ISO 800 . Ég er ekkert kominn með myndvinnsluna á hreint ennþá myndirnar eru bara fljót unnar.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|