Stjörnubjart hér vestra í gærkvöld, skýjahula var fram undir tíu, en þá rofaði alveg til og var albjartur himinn. Ég fór samt fljótlega eftir kvöldmat að skoða Júpiter svona á milli skýja, ég var nú bara hér úti í garðinum mínum svo það var stutt að fara inn á milli þegar ekkert sást. Mikil glýja var og Júpiter var mjög óskýr framanaf en um miðnætti var hann komin svo hátt á loft og voru aðstæður orðnar allt aðrar. Ég sá skýjabeltin mjög vel og gat stækkað hann upp töluvert, sá einnig rauða storma blettinn góða sem ég hef ekki séð svona vel áður. Ég tók vídeó af júpiter sem ég á eftir að vinna úr en hef ekki náð því svona góðu heldur áður. Ég skoðaði eitthvað fleira og var 8 tommu dobson sjónaukinn notaður líka, M31-m13-m57-m27-m33 m71-M1- M56-m97-m108-m92-m103 double cluster og einhverjar fleiri stjörnuþyrpingar, skoðaði einnig nokkur tvístyrni sem komu vel út Alkor og Misar- Almaak- og einhvar fleiri. Skoðaði líka stjörnuna Mírak og drauginn hanns eða vetrarbraut sem felur sig nánast á bak við Mírak og er kölluð ghost of Mirak,NGC 404.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|