Stjörnubjart hér vestra í kvold, kom svolítið á óvart að það hafi orðið svo því að það spáði skýjuðu hér. En first það var stjörnubjart þá komst ég út með græjurnar og nýju síuna frá Baader og reyndist hún bara vel bláminn nánast alveg horfinn, ég á eftir að prufa þetta betur seinna. En skotmörk kvöldsinns var meðal annars M45, The Plades eða bara sjöstirnið. Ég tók 7 x 300 sek myndir ISO 1600 og sést þokan sem umlikur stjörnurnar bara ágætlega. Nokkrar af myndonum voru teknar með krossspjald fyrir framan sjónaukann og koma spækar á stjörnurnar út frá því. Hægt er að sjá stærri útgáfu í myndaalbúminu. Ég tek eftir því að auðveldara er að vinna myndirnar þegar þessi blámi er ekki að trufla, ég á samt eftir að læra á það hvernig ég mynda með filterinu, ég má ekki fara yfir 5 min þá fara stjörnurnar að dragast til ég er ekki með audoguide úr tölvunni sem kemur kannski seinna.
Kristján Heiðberg
12/17/2011 08:07:34 pm
Sæll
Jón Sig
12/17/2011 08:23:36 pm
Takk fyrir Krisján, þetta er allt annað að hafa ekki blámann, þegar ég sooma hráu myndirnar alveg upp þá sér maður smá bláma en það er svo lítið að það truflar ekki svo myndvinnsluna eins og áður. Comments are closed.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|