Hér er einn rammi sem ég tók af Pacman þokunni, hún er tekin í nær fimm mínútur á ISO 1600 með Baader contrast booster síunni, ég er aðeins búinn að eiga við hann til að skerpa á þokunni sjálfri ég vona að ég geti tekið kannski tíu svona til að stafla saman í næstu lotu, svo er gott að hafa hana á miðjunni á myndinni, en málið var nú þannig að þessar tvær björtu stjörnur voru miðpunkturinn hjá mér í myndavélinni en ég fór aðeins til hliðar einhverra hluta vegna og ég bara vissi ekki að þokan væri akkúrat á annari björtu stjörnunni. Þetta verður næsta target.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|