Ég fór út nú í kvöld með græjurnar, stjörnubjart svona af og til, þegar ég var búinn að stilla upp þá var orðið albjartur himinn. Ég var að reyna að finna pacman þokuna, ég hef aldrei myndað hana svo ég beindi sjónaukanum bara á þann stað sem ég hélt að hún væri og skaut nokkrum myndum en sá ekki þokuna birtast á myndonum svo ég hætti við það fyrirbæri tók hér tvær myndir af Double cluster í staðinn. Svo dró fyrir allt saman og ég pakkaði saman dótinu og fór inn. Þegar inn var komið setti ég myndavéla kubbinn í tölvuna og fór að skoða myndirnar og sá þá að ég var á réttum stað með pacman þokuna hún sást á myndonum sem voru fáar og alls ekki hægt að stafla. en ég er staðráðinn í að prufa aftur næst þegar viðrar.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|