Heiðskýrt í dag en veit ekki hvort það verður í kvöld, en þá er líka hægt að skoða sólina og sólbletti. Í gær var bara einn pínulítill blettur en í dag eru komnir fleiri og stærri ,, jú sólin sníst nebbilega,, sólblettir eru númeraðir í þeirri röð sem þeir birtast og heita því nafni. Þessi stærri heitir 1429 og þessi neðri minni bletturinn er 1428. Þessa mynd tók ég með logitech webcam 9000 og með sérstakt sólar filter fyrir sjónaukanum. ATH aldrei skoða sólina án viðeigandi búnaðar,, sorrý en maður verður að taka þetta fram í hvert sinn svo engin rjúki í þetta með berum augum.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|