Stjörnubjart í kvöld svona til að byrjameð en svooo... í kvöld var alveg stjörnubjart enda á milli í Dýrafirðinum og mikið sjónarspil á himni first og fremst var fullt tungl stórt og tignarlegt, og þar við hliðina var plánetan Mars og svo dálítið lengra voru Júpiter og venus hlið við hlið, og ofan í allt saman voru norðurljós dansandi eins og .....
mjög fallegt og mikið og margt að sjá.
Ég fór af stað út fyrir bæinn með ljósmyndunar græjurnar til að taka mynd af Halastjörnunni Garradd. Þegar ég kem á staðinn er allt eins og það á að vera heiðskýrt ag fallegur himinn. Ég set upp græjurnar og áður

en ég byrja á að tengja rafmagnið langaði mig til að kýkja snöggvast hvoert ég finndi halastjörnuna og það gerði ég og smellti einni 20 secúndna mynd og kom litill hnoðri á myndina. Nú þá var ekkert nema að tengja og pólstilla stæðið og koma öllu í gang og þegar það var að verða búið og allt klárt ...... nú þá gerðist það eins og hendi væri veifað byrtust ský algerlega uppúr þurru.. ekki bara á einum stað heldur allur himininn eins og hann lagði sig og á tveim mínútum engar stjörnur. þá var pakkað saman og ekið heim í fínu skapi .. eða EKKI.