Fór í gærkvöld í stjörnuskoðun með sjompinu, það far ekki sérlega heiðskýrt en rofaði smá til svo að það sást smá til stjarna. Ég stillti upp stæðinu en pólstillti ekki svo að ég gat ekki látið stæðið leita fyrir mig þannig að ég leitaði bara með handsettinu. Ég fór strax að leita að halastjörnunni Garradd og fann hana nánast strax, nú svo tengdi ég myndavélina og skaut nokkrum myndum en ég náði ekki að fókusa á fyrirbærið því að stjörnur voru mjög daufar séð í gegnum myndavélina, enda var þetta gert hratt og óörugglega. myndin er bara ein og kemur hér alveg úr fókus en Garradd sést þarna. En þið afsakið lélega mynd enda er þetta ekki svo auðvelt.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|