Sólbletturinn sem ég tók mynd af fyrir tveimur dögum hefur stækkað og er nú orðinn sjö sinnum stærri en Jörðin og er enn að stækka. Bletturinn ber nafnið eða töluna AR 1429 en blettirnir eru númeraðir eftir því að þeir byrtast. Í gær 7. mars varð Kórónuskvetta að stirkleika X5 class sem er ansi mikið og verða því töluverð norðurljós næstu daga eins og komið hefur fram í fréttum. Þessa mynd tók ég um níu leitið í gærmorgun rétt áður en ég fór í vinnuna svo ég var eiginlega á hlaupum þegar ég tók hana og hún er því ekki alveg í fókus. Þegar kórónuskvettur verða svona stórar fara norðurljósin ekki bara rétt niður fyrir pólana heldur teigja þeir sig jafnvel aðeins lengra niður eftir jarðar kringlunni svo að þeir sem mjög sjaldan sjá norðurljós fá nú að sjá eitthvað af þeim. Hér yfir Dýrafirðinum eru norðurljós hinnsvegar mjög tíð og eru stundum að pirra mig í stjörnuljósmyndun.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|