Hér er Flame nebula sem ég myndaði á laugardaginn síðasta 26. nov. Ég er bara ótrúlega sáttur við þessa eins og hinar sem ég tók líka. Þessi er tekin á Nikon D40- ISO 1600- sem eru um 10 myndir 2 min hver um sig. Ég hef aldrei náð að sjá Horse head nebula líka á mínum myndum þannig að ég er ótrúlega sáttur við hana. Myndin er stærri í myndaalbúminu hér uppi. Ég náði fullt af myndum þessi tvö kvöld, veður mjög gott á föstudagskvöldið og heiðskýrt, og svo var alveg logn þannig að aðstæður voru góðar. Á meðan ég var að taka myndirnar horfði ég bara upp í himininn og virti fyrir mér stjörnurnar og allt sem himininn hefur uppá að bjóða. Loftsteinar komu stöku sinnum í lofthjúpinn okkar með tilheyrandi ljósrönd. Ég var einn á ferð og var ég staddur í þetta skiptið uppá fjallinu okkar Sandafelli,þar var algert myrkur, logn og dauða þögn hvað er nú betra en það? það eina sem ég heyrði var kurrið í sjónaukastæðinu og röflið í sjálfum mér... við sjálfan mig, við erum góðir saman ég og mig þegar við erum einir
Kristján Heiðberg
12/2/2011 02:45:16 am
Sæll
Jón Sig
12/2/2011 03:29:18 am
Takk fyrir þetta Kristján. Ég sé mikinn mun á því að fara út fyrir bæinn og legg það alveg á mig enda ekki nema 5 minútur á staðinn. Stundum fer ég með ljósmynda græjurnar og 8 tommu dobsoninn líka til að skoða á meðan ég er að mynda.
Reynir
12/2/2011 06:20:35 am
geðveik mynd! Comments are closed.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|