Stjörnubjart hér vestra í gærkvöld 4. nov. Ég bauð konunni með mér út í garð að skoða stjörnurnar. Skoðuðum við Júpiter og tunglin þrjú,, já bara þrjú því að tunglið Evrópa var á bakvið Júpiter, en tókum eftir því að eftir klukkutíma var Evrópa sýnileg og er ótrúlegur hraði á tunglunum á hringsóli sínu um Júpiter. Skýjabelti Júpiters voru skýr og greinileg og stækkaði ég upp í 250x stækkun og var plánetan bara skýr og góð við þá stækkun. Ég sýndi konunni þessi helstu fyrirbæri sem ég hef skoðað í hverri ferð sem ég fer í stjörnuskoðun eins og M57 hringþokuna í Hörpunni M13 stjörnuþyrpinguna í Herkúlesi og eitthvað fleira. Einhver sagði að þetta hafi verið eins og rómantísk stund úr bíómynd, já hvað er rómantískara en að fara með konunni í stjörnuskoðun. Það virðist ætla að vera stjörnubjart alltaf þegar það er vaxandi tungl sem er að varða ansi leiðinlegt allavegana til að fara í stjörnuljósmyndun og nenni ég eiginlega ekki að reyna einusinni að taka myndir þegar það er tungl bara leiðinleg tímasóun í ekki neitt. Svo þegar tunglið er farið þá koma lægðir með tilheyrandi úrkomu og leiðindar veðri.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|