Kíkti hér út um gluggann í morgun (10.nov) og sá að það var stjörnubjart svona um hálf átta, ég sá stjörnumerkið Ljónið (Leo) og þar var plánetan Mars skær og fín. Ég tók átta tommuna sem var við dyrnar og skoðaði plánetuna og sá dökkusvæðin, dálítill vindur var og sjónaukinn hreifðist mikið,ég notaði 25mm og 4mm augngler, einnig skoðaði ég Satúrnus sem var lágt á lofti , hringarnir eru orðnir tignarlegir og sjást mjög vel. Ég teiknaði eina lélega mynd til að láta með færslunni.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|