Birti aðeins til hér vestra í kvöld og sást til stjarna, lélegt stjörnuskyggni þó en alltaf gaman að kíkja aðeins út. Ég fékk lánaðan handsjónauka hjá pabba gamla og er það ótrúlegt hvað er hægt að sjá með handsjónauka. Ég skoðaði lausþyrpingarnar M35-M36- M37- M38- M103- M45- Double cluster - og svo varð ég að reyna við halastjörnuna Garradd sem er núna í stjörnumerkinu Herkúles sem var þó nær allann tímann hulinn skýjum eða einhverri slæðu, en ég náði að finna M13 kúluþyrpinguna og M92 með handsjónaukanum sem voru rosa daufar en ég veit nákvæmlega hvar þær eru svo það var ekkert mál, en út frá þeim rakti ég mig uppá við og fann Garradd halastjörnuna sem lítinn þokublett. Ég held að þetta verði auðvelt skotmark fyrir stjörnuljósmyndun næst þegar ég fer að mynda Garradd á nefnilega eftir að hækka á lofti og verða bjartari. Tunglið góða kom upp og var hulið skýjamóðu og myndast þá svona hringur eða ljósbjarmi í skýjin kringum tunglið sem er mjög fallegt að sjá og auðvelt að mynda.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|