Takk fyrir túkall.
Ég sá í veðurspánni að það ætti að vera heiðskírt áðfaranótt laugardags hér fyrir vestan, svo sáust nokkrar stjörnur um kvöldið þannig að ég var bjartsýnn um að svo yrði. Ég vaknaði svo um 3 leitið og þá var stjörnubjart svona nánast yfir allann himininn svo ég dreif mig af stað og ætlaði að taka nokkrar myndir, þegar á staðinn var komið var þokkalega bjartur himinn en eftir c.a 10 minútur var eins og ský byrtust bara og eftir smá stund sást voða lítið. Samkvæmt spánni átti að vera bjart milli 3 og kannski 7 um morguninn þannig að ég hélt að ég hafi verið of fljótur ámér svo ég fór heim aftur og lagði mig til kl:5 þá kýkti ég út um gluggann og þá var heiður himinn svo ég rauk af stað aftur og það var enn bjartara en áður og skyggni mjög gott og stjörnubjart alveg niður allann sjóndeildarhringinn. Ég byrja að taka upp dótið og stilli upp dótinu og ég er ekki búinn að klára að setja upp stæðið þegar ég sé að ský fara að myndast upp úr þurru eins og áður, og sama eftir um 10 til 15 minútur var allt orðið hulið þykkum skýjum nema nokkrir smá staðir sem sást í gegn, er þetta ekki dæmigert hel........ ég get svarið það ég öskraði upphátt þar sem ég stóð einn úti í villta vestrinu og bölvaði og bölvaði. Svo var farið heim og grjót sofið fram á hádegi.
Takk fyrir túkall. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|