Smíðaði mér ferðakassa undir sjónaukann til að auðvelda mér flutning með græjurnar út fyrir bæinn, einnig passar EQ3 stæðið í kassann líka og allar snúrur og allt sem fylgir stæðinu nema þrífóturinn. Nú þarf ég bara að bera þennann kassa út í skottið á bílnum og þrífótinn þá er allt komið. Áður voru svo margar ferðir út í bíl með allt dótið og passa þurfti að sjónaukinn yrði ekki fyrir hnjaski frá öðru dóti í bílnum, en nú er allt leist með nýja kassanum frá Jonson og vium.
2/5/2012 10:46:27 pm
Sælir. Gaman að sjá hversu líflegt þetta er þarna á Þingeyri. Við erum með námskeið hér í Vestmannaeyjum og það hafa verið alls 30 manns á þeim í fyrravor og núna. Ég rakst á síðuna þegar ég var að Gúgla Herkúles við leit að m.a. halastjörnunni Garradd. Takk kærlega fyrir.
Jón Sig
2/6/2012 01:36:47 am
Takk. fyrir innlitið Karl Gauti. Eruð þið með stjörnuvef í eyjum?
Karl Gauti
2/6/2012 04:15:23 pm
Nei, það er ekkert slíkt ennþá. Þetta eru byrjendanámskeið í stjörnufræði. Kannski gerist eitthvað fleira í framhaldinu. Við erum að vinna í því að fá Sverri frá SSFS á næstu dögum þegar viðrar betur til stjörnuskoðunar. Hér er reyndar ansi oft úrkoma og sjaldnar heiðskýrt, a.m.k. á þessum tíma. Það er gott að geta farið á þessa vefi þegar leitað er að fróðleik. Ég sé að þú ert á fullu að þjálfa þig í stjörnuljósmyndun.
Jón Sig
2/6/2012 04:56:17 pm
Já ég er að reyna að taka stjörnumyndir en það er erfiðara en það sýnist, ég er kominn með ágætis búnað vantar bara gott veður. Ég er búinn að vera í þessu síðan 2007 en er ekki búinn að vera í stjörnuljósmyndun nema kannski ár. Það eru ekki margir vefir hér á Íslandi, en nóg af þeim erlendis og um að gera að sækja fróðleik þaðan, og líka héðan af fróni, og líka um að gera að skrifast á ef eitthvað kemur upp í hugann í þessu skemtilega áhugamáli. Comments are closed.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|