Hér er Rósin eða bara Rosette nebula sem að er dálítið stór þoka á himninum. Þokuna er að finna á milli stjörnumerkjanna Órion og Tvíburanna, en auðvitað sést hún ekki með berum augum en ég vissi nákvæmlega hvar hún var og beindi sjónaukanum á litla stjörnuþyrpingu sem nefnist NGC 2244 og er hún í miðju rósarinnar, þessa þyrpingu sá ég með berum augum. Þessi mynd er eiginlega alveg hræðileg, lýsingartíminn of langur svo að stjörnurnar voru ekki punktar heldur drógust þær til, Ég tók bara 6 myndir en bara tvær eða þrjár voru nothæfar, svo var stillingin ISO 1600 svo þar kemur mikið suð í myndina (noise) en Rósar þokan sést alveg og læt ég hana koma hér. Ekki eru mörg tækifæri til að fara og taka myndir þannig að þennann firsta vetur með þessum græjum mínum ætla ég bara að finna mig í þessu og pósta svona flestum myndum sem ég tek sumar eru góðar en aðrar verri en það verður að hafa það, ég læri bara á þessu og kannski aðrir líka, þetta sýnir líka að þetta er alls ekkert auðvelt að taka stjörnumyndir, þolinmæðin og allt það, þegar búið er að taka 10 myndir eru kannski ekki nema helmingurinn nothæfur, og hver mynd er nærri 5 minútur úti í frosti og kulda.
Info:
3x 4,5 min og 5x 4min darks ISO 1600
Nikon D40 6megapixel
127mm refracting telescope
Info:
3x 4,5 min og 5x 4min darks ISO 1600
Nikon D40 6megapixel
127mm refracting telescope