Stjörnubjart hér vestra í gærkvöld, mjög fallegt veður oalveg hreinn himinn svo að aðstæður voru mjög góðar. Vetrarbrautarslæðan sást mjög vel og stjörnur líka. Ég fór með græjurnar og tók myndir en ég á eftir að vinna þær. Ég smellri hér nokkrum myndum af norðurljósum sem voru falleg að vanda en þau trufluðu mig ekki fyrr en alveg í restina þegar ég var að pakka saman, þá tók ég þessa mynd og má sjá þar sem ljósin frá bænum eru, þar má sjá hve björt norðurljósin voru því að þau spegluðust í sjónum á firðinum.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|