Jæja fyrirséð að himnarnir opnist á morgun mig langar í smá stjörnuskoðun annað kvöld tek væntanlega engar myndir nema þá af tunglinu þar sem það er nánast fullt. Svokölluð súpernóva hefur uppgötvast í Stjörnumerkinu Ljónið nánar tiltekið í óreglulegri vetrarbraut sem kallast NGC 3239. Þetta er semsagt stjarna sem endar ævi sína með sprengingu, hún fannst 7 janúar með 16 tommu sjónauka og var þá birtustig hennar um 14,6 svo daginn eftir 14,4 og nýlega 13,9 þannig að hún verður bjartari og bjartari og ætti kannski að sjást með 8 til 10 tommu sjónauka en samt á mörkum þess. Ég geri ekki ráð fyrir að við sjáum hana hér þó að ljóns merkið sé að hækka á lofti, því að tunglið er núna nánast á þeim stað sem súpernóvan er.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|