Smá stjörnuskoðun í gærkvöld og ætla aftur í kvöld ef veður leyfir. Í gærkvöld reyndi ég við ljósmyndun en mikil norðurljós yfir allann himininn fram eftir öllu kvöldinu gerði mér erfitt fyrir og er nánast ekkert hægt að taka myndir með bullandi norðurljós yfir öllu. Allar myndirnar voru ónýtar. hér er ein mynd af M15 kúluþyrpingunni og er þetta bara ein mynd ekki margar. Stefnt er á ljósmyndun í kvöld og kannski skoðun líka.
Stjörnuskoðun hér vestra í gærkvöld, himininn var sá besti sem ég hef séð lengi, það er ég sá ekki svona vel mörg skipti í fyrravetur. Vetrarbrautarslæðan sást mjög vel héðan úr garðinum hjá mér inní miðjum bænum. 127mm refractor Nikon D40 ISO 1600 12 pics total 57 min Ég skoðaði með átta tommu sjónaukanum meðal annars ,,M13,M27,M92,M57,M51,M31,M33,M15, M81,M82, M45,M71,M56,M108,M97, ásamt einhverju fleiru. Myndataka fór einnig fram og varð M31 Andromeda fyrir valinu þatta skiptið. Nú er farið að dimma all verulega hér vestra og nógu dimmt til að taka stjörnumyndir svone eftir miðnættið. Ég er búinn að fara þrisvar í svona stutta stjörnuskoðun út í garð með átta tommu sjónaukann og kýkja á ýmislegt og gaman að fá að virða fyrir sér stjörnur og stjörnuþokur á ný eftir sumar hlé. Norðurljósin hafa verið sterk og áberandi öll kvöldin sem ég fór út þannig að kannski hefði ég ekki getað myndað mikið. mig bráð vantar leitarsjónauka á áttatommu dobson sjónaukann ef einhver á aukalega sem vantar að losna við fyrir lítið. Núna í kvöld 27. júlí sá ég fyrstu stjörnur svona um eða uppúr klukkan eitt, kannski af því að ég fór að kýkja eftir þeim hefði örugglega séð þær fyrr því að þær eru nokku bjartar á himni. Altaír, Vega og Deneb eða sumar þríhyrningurinn voru nokkuð greinilegar og sá ég einnig Arktarus og Capella mjög vel. Mig hlakkar mikið til að fara að taka upp græjurnar aft
Hér er mynd af Satúrnusi sem ég tók veturinn 2010-2011, þetta eru rammar úr vídeói staflað í registax. Vídeóið var tekið á Sony DCR í gegnum 20mm augngler á 8 tommu dobson sjónaukanum. Ég var að reyna að laga hana og gera hana skarpari svo hún er aðeins betri núna. Þetta eru mjög fáir rammar svo að ég veit að ég get gert miklu betur, þetta vídeó var allt á hreyfingu þannig að ég náði ekki nema kannski 10-20 römmum til að stafla, með góðu vídeói sem myndin er nokkuð kyrr er auðvelt að ná 200- 300 römmum og stafla. Satúrnus verður ekki á himni í vetur nema þá lágt á lofti rétt áður en sól rís að morgni. Ný vefmyndavél frá Dýrafirði, mjög skörp og góð myndavél.
Myndin er Lifandi hreyfimynd eða svona vídeóstreymi, sést vel hvernig viðrar hjá okkur hér vestra. Þingeyri er þarna vinstra megin svo er horft út fjörðinn. Hægt er að hægrismella og stækka myndina í fullscreen. Linkurinn er hér Vel heppnuð sólskoðun á Hrafnseyri og Þingeyri, fjölmargir kýktu í sjónaukann og virtu fyrir sér sólina og þá stóru sólbletti sem á henni voru. Svona leit sólin út núna 15. júní og verður svipuð þann 17. júní þegar Stjörnuskoðunarfélag Seltjarnarness verður með sína árlegu sólskoðun á 17. júní við Austurvöll í RVK, ég sem félagi í því félagi verð einnig með sólskoðun á Hrafnseyri fæðingarstað Jóns Sigurðssonar milli 14:00 og 16:00 og svo á Þingeyri við N1 söluskálann. eftir kl 17:00. Vonum bara að sólin verði ekki hulin skýjum þann dag. Stjörnuáhugafólk á Þingeyri og nágrenni virtu fyrir sér þvergöngu venusar, ský voru að þvælast fyrir í upphafi þvergöngunnar en svo rofaði til og sást til sólar með ágætum. Um 30 manns mættu til að virða þetta fyrir sér og þótti flestum ef ekki öllum stór merkilegt að fá að vera vitni af þessum merkilega viðburði. Horft var í gegnum 8" dobson spegilsjónauka með white light síu sérstök til sólskoðunnar. Ég HR Jón Sigurðsson tók nokkrar myndir af viðburðinum sem eru hér á eftir. |
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|