Nú er farið að dimma all verulega hér vestra og nógu dimmt til að taka stjörnumyndir svone eftir miðnættið. Ég er búinn að fara þrisvar í svona stutta stjörnuskoðun út í garð með átta tommu sjónaukann og kýkja á ýmislegt og gaman að fá að virða fyrir sér stjörnur og stjörnuþokur á ný eftir sumar hlé. Norðurljósin hafa verið sterk og áberandi öll kvöldin sem ég fór út þannig að kannski hefði ég ekki getað myndað mikið. mig bráð vantar leitarsjónauka á áttatommu dobson sjónaukann ef einhver á aukalega sem vantar að losna við fyrir lítið.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|