Svona var útlitið í kvöld, stjörnubjart tungl, svolítill vindur, ég fór með átta tommu sjónaukann út á gangstétt og skoðaði Júpiter og tunglið, bæði komu ágætlega út, vindurinn stóð samt inn í túbuna og allt á hreifingu, svolítil ókyrrð í lofti sem gaf ekki alveg skýra mynd, sá samt skýjabeltin á skífunni og tunglin fjögur skörtuðu sínu. Tunglið var bjart og fallegt og gígarnir skarpir og góðir við mikla stækkun mjög gaman að skoða ,, svolítið langt síðan ég nennti að skoða tunglið.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|