Smá stjörnuskoðun hér í kvöld, tungl skýrt og flott, Venus, plaides, Mars, Saturn, M13 M92, M3 , norðurljós, smá myndataka en ekkert alvarlegt bara svona til að láta fylgja færslunni. Semsagt Venus og sjöstirnið áttu stefnumót í kvöld og náði ég að festa það á filmu svona því til sönnunnar, myndin er tekin í 20,sek á ISO 800 með Nikon D40, 127mm sjónauka, þetta er bara ein mynd í jpg, og alveg óunninn því að tölvan mín hrundi og hef ég ekkert til að vinna með þessa dagana, engin forrit eða neitt til að setja inn myndir. Ég skoðaði einnig venus smá í 8" sjónaukanum og einnig Mars og Satúrnus sem var lágt á lofti en hringarnir sáust þokkalega en svona mistur yfir fjöllonum gerði mikla hreifingu á satúrnusi. Á Mars sá ég dökkleit svæði en var ekkert að stækka og reyna neitt að viti að þessu sinni bara skemmtilegt að skoða. Norðurljósin voru einnig nokkuð sterk og flögrandi eins og van
.