Rosabaugur um sólu hér vestra núna seinnipartinn í dag, það eru ekkert allir að taka eftir þessu því sólin er björt og beugurinn ekkert rosa sterkur, en ég tók allavegana eftir honum og smellti nokkrum myndum.
Hér kemur svo skýring sem ég tók af vef veðurstofunar.
Rosabaugur myndast þegar sólin skín í gegnum þunna skýjabreiðu (oftast bliku) sem er hátt á himni. Hún inniheldur ekki vatnsdropa, heldur ískristalla, því það er yfirleitt frost svona hátt uppi.
Ljósið frá sólinni brotnar í kristöllunum og það myndast eins konar regnbogi kringum sólina. Ískristallarnir eru sexstrendingar og þegar ljósið fer í gegnum þá breytir það um stefnu, en misjafnlega mikið eftir því hvernig það fellur á strendinginn.
Algengasta stefnubreytingin er 22 gráður, og þess vegna myndast hringur í þeirri fjarlægð frá sól á himninum. Þetta gerist þótt ískristallarnir snúi á alla mögulega vegu í skýjunum; við sjáum samsafn ljóss sem fer gegnum þá kristalla sem hafa mátulega stefn