Sólbletturinn AR 1302 er ansi stór eins og sést á þessari mynd sem ég tók í morgun um átta leitið. Það hljóta að koma góðar skvettur úr þessu með tilheyrandi norðurljósum og látum. Það er alveg dæmigert þegar tunglið er farið í mirkrið og himininn dökkur og fínn að þá skuli norðurljósin taka við, jáá sorrí en fyrir myndatökur er það hundleiðinlegt,, fyrir ferðamenn og útlendinga er þetta voða flott en hér fyrir vestan er þetta bara svo algengt að maður fer að fá leið á þessu. Þessi mynd er tekin af loftinu í stofunni, sjónaukinn án filters og beint opp í loftið þar sem bletturinn kemur svona líka skýrt og greinilega í ljós og einnig hulan sem er í kringum sólblettinn.
|
Sky66
Jón Sigurðsson Eldra blogg
December 2015
.
|